Innlent

Íslendingur sagður hafa tekið upp ISIS myndbönd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steven Sotloff var afhausaður af meðlimi ISIS. Allt var það tekið upp á myndband.
Steven Sotloff var afhausaður af meðlimi ISIS. Allt var það tekið upp á myndband.
Í umfjöllun á vefsíðunni The New York Review of Books segir fyrrverandi liðsmaður ISIS að Íslendingur hafi tekið upp myndbönd fyrir hryðjuverkahópinn ISIS. Grapevine greinir fyrst frá þessu í dag.

Því er haldið fram að Íslendingur sé á meðal þeirra sem gengið hafi til liðs við hópinn. Honum hafi verið ætlað að taka upp myndbönd og vinna þau.

Sarah Birke, fréttaritari The Economist í Mið-Austurlöndum, skrifar greinina. 

Birke greinir frá því að Abu Hamza, fyrrverandi liðsmaður ISIS, hafi talað um Íslending í samtölum við hana og að hann hafi verið fengið til liðs við ISIS með það að leiðarljósi að laða að nýja meðlimi og hræða almenning í hinum vestræna heimi.

Hraðinn á stórsókn vígamanna samtakanna Íslamskt ríki í Írak og Austurlöndum nær (ISIS) í Írak virðist hafa komið mörgum í opna skjöldu.

Markmið ISIS er að stofna íslamskt ríki með sjaría-lögum. Samtökin hafa skipulagt hryðjuverk í Írak á undanförnum árum, en hafa barist við stjórnarherinn í Sýrlandi síðustu ár og halda þar stóru landsvæði við landamærin við Írak.

Uppfært

Í fyrstu útgáfu þessarar fréttar stóð að „fullyrt væri í umfjöllun The New York Review“ að Íslendingur hefði tekið upp myndbönd. Réttara hefði verið að segja að fyrrum liðsmaður ISIS haldi því fram í viðtali við miðilinn.

Ættingjar Íslendings sem starfað hefur á Sýrlandi hafna tengslum hans við ISIS. Þvert á móti segja þau hann berjast gegn ISIS og öðrum öfgasamtökum í heiminum. Nánar um það hér.


Tengdar fréttir

IS horfir til Sádi-Arabíu

Íslamska ríkið hefur lítinn áhuga á að stöðva á þeim stað sem það er núna.

Bjargaði dóttur sinni úr röðum ISIS

Hollensk móðir hefur bjargað dóttur sinni úr röðum ISIS eftir að hún hélt til sýrlensku borgarinnar Raqqa og fór með hana aftur til Hollands.

Eiginkona leiðtoga ISIS tekin höndum

Talsmaður líbanska hersins hefur staðfest að öryggissveitir hafi handtekið eiginkonu og son Abu Bakr al-Baghdadinærri landamærunum að Sýrlandi.

Ísland fyrirheitna land múslima

Myndband sem sjónvarpsstöð framleiðir og boðar trú á Allah byggir að verulegu leyti á myndskeiðum frá Íslandi.

Isis með þjálfunarbúðir í Líbíu

Isis samtökin hafa komið sér upp þjálfunarbúðum í austurhluta Líbíu. Þetta fullyrða bandarísk stjórnvöld og er talið að nokkur hundruð vígamenn séu nú samankomnir í búðunum sem nýlega var komið á laggirnar.

„Brýnt að bregðast við grimmdarverkum ISIS“

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sótti í dag utanríkisráðherrafund sextíu ríkja í Brussel sem taka þátt alþjóðlegum aðgerðum gegn hryðjuverkasamtökunum ISIS í Írak og Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×