Innlent

Íslendingur í farbann: 36 þúsund barnaklámsmyndir á tölvu sinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir
Hæstiréttur hefur staðfest farbann Héraðsdóms Reykjaness yfir Jóni Sverri Bragasyni, 59 ára gömlum dæmdum kynferðisbrotamanni. Jón Sverrir var stöðvaður í Leifsstöð við komuna til landsins 1. ágúst en tollgæslan hafði grun um að í fórum hans væri að finna barnaklám. Farbannið gildir til þriðjudagsins 16. september.

Við leit í farangri Jóns Sverris fundust vísbendingar um barnaklám og lagði lögregla í kjölfarið hald á tvær Samsung-tölvur og sex minnislykla. Í farbannsbeiðninni að við skoðun á annarri tölvunni fundust um 36 þúsund ljósmyndir sem sýna unga drengi ýmist nakta eða á annan kynferðislegan hátt. Rannsókn stendur yfir en við hana hafi komið í ljós að myndbönd hafi verið vistuð bæði á tölvunum og minniskubbunum. Telji lögreglan að myndböndin hafi innihaldið kynferðisbrot gegn börnum. Vinnur lögregla að því að endurheimta myndböndin.

Jón Sverrir er ekki búsettur á Íslandi og af þeim sökum telur lögregla að ætla megi að kærði gæti reynt að komast úr landi áður en rannsókn lögreglu ljúki. Af þeim sökum er óskað eftir farbanni. Á það féllst dómari bæði í héraði og nú í Hæstarétti.

Braut gegn þroskaheftum dreng

Í dómi Hæstaréttar í dag er minnt á að Jón Sverrir hafi þann 20. maí árið 2010 verið dæmdur í þriggja ára og sex mánaða fangelsi. Um var að ræða kynferðisbrot gegn þroskaheftum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin.

„Jón Sverrir tældi piltinn til kynmaka með því að notfæra sér þroskaskerðingu hans, reynsluleysi hans af kynlífi og tölvufíkn, en Jón greiddi drengnum fyrir kynmökin með tölvuleikjum eða peningum,“ segir í dómi Hæstaréttar frá 2010. Var Jóni Sverri veitt reynslulausn í desember 2012 eða þegar hann hafði setið inni í tvö og hálft ár.

Hæstiréttur vísar í dómi sínum í dag til þess að úrskurða megi sakborning í farbann í stað gæsluvarðhalds sé fram komin rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing sé lögð við.

„Ætla megi að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar.“

Hæstiréttur staðfestir því dóm Héraðsdóms Reykjaness um farbann til 16. september. Brot Jóns Sverris getur varðað allt að tveggja ára fangelsi samkvæmt 210. grein almennra hegningarlaga nr. 19/1940.


Tengdar fréttir

Þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng

Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann um sextugt, Jón Sverri Bragason, til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin. Að auki er manninum gert að greiða drengnum eina og hálfa milljón króna í bætur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×