Sport

Íslendingarnir vaktir upp fyrir allar aldir og réttur flugmiði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Katrín Tanja, Sara Sigmunds og Annie Mist eru á meðal glæsilegra fulltrúa Íslands á leikunum.
Katrín Tanja, Sara Sigmunds og Annie Mist eru á meðal glæsilegra fulltrúa Íslands á leikunum. vísir/daníel
Keppni í einstaklingsflokki á heimsleikunum í Crossfit er hafin. Keppendur voru ræstir út klukkan hálf fjögur að staðartíma í nótt, haldið var um borð í flugvél áleiðis til Aromas frá LAX flugvellinum í Los Angeles. 

Meðal keppenda eru íslensku stelpurnar Annie Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Þuríður Erla Helgadóttir sem allar eru taldar líklegar til afreka. Sömu sögu er að segja um Björgvin Karl Guðmundsson sem vann bronsverðlaun í karlaflokki í fyrra.

Uppfært: Keppni er lokið í fyrstu greininni, sjö kílómetra víðavangshlaupi. Katrín Tanja hafnaði í fjórða sæti í kvennaflokki og Björgvin varð sjöundi í karlaflokki. Upptöku frá hlaupinu má sjá að neðan.


Engin bein útsending verður á YouTube frá keppnisdeginum í dag en stundum detta inn beinar útsendingar á Facebook-síðu CrossFit Games. Til stendur að sýna samantektarmyndband frá deginum í dag, á morgun.

Á Twitter-síðu Crossfit Games má fá upplýsingar um útsendingar og einstakar greinar.

Björgvin Karl hirti bronsið.mynd/snorri björnsson
Keppt verður í fyrstu tveimur greinunum í dag á „Búgarðinum“ (e. The Ranch) sem er sögulegur staður í huga leikanna en þar var fyrst keppt árið 2007 og áfram bæði árin 2008 og 2009.

Að neðan má sjá myndband af því þegar keppendur gerðu sig klára í slaginn í ferðalagið og var tilkynnt að þeir væru á leiðinni í flug.

Hver og einn fékk að taka einn poka með sér. Viðbrögðin voru misjöfn og velti fólk ýmsu fyrir sér, meðal annars hvort taka þyrfti vegabréfið með eða ekki.

Höfðu sumir á orði að óvænt útspil skipuleggjenda hentaði reynslumeiri þátttakendum betur því þau væru vanari skyndilegum breytingum frá fyrri keppnum.

Að neðan má sjá keppendurna þegar þeir komu úr flugvélinni í San José.

Keppendur mættu svo á Búgarðinn þar sem farið var yfir reglurnar fyrir fyrstu tvær þrautirnar.

Að neðan má sjá skýringu á fyrstu keppnisgreininni þar sem hlaupnir eru sjö kílómetrar en brautin er langt í frá bein og greið. Í framhaldinu verður keppt í réttstöðulyftu á tíma þar sem þyngdirnar aukast stöðugt.

Í hvorri grein eru 100 stig í boði.

Sem fyrr segir verður aðeins hægt að fylgjast með keppni í dag endrum og sinnum á Facebook-síðu leikanna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×