Innlent

Íslendingar telja að ekki sé hægt að draga fram lífið á örorkubótum

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga telur að ekki sé hægt að lifa af 172 þúsund krónum á mánuði, en sjötíu prósent öryrkja þurfa að framfleyta sér á þeirri upphæð. Sárafáir Íslendingar eru þeirrar skoðunar að hægt sé að gera þá kröfu til öryrkja að þeir geti lifað af því sem stjórnvöld skaffa þeim til framfærslu.

Þetta kemur fram í nýrri könnun  sem Gallup gerði fyrir Öryrkjabandalagið. Samkvæmt henni vilja flestir að lífeyrisþegar fái jafnmikla krónutöluhækkun og aðrir. Rúm 30 prósent vilja reyndar ganga enn lengra. Þetta kom fram á fundi Öryrkjabandalagsins um kjaramál Örorkulífeyrisþega í dag.

 

Líf án reisnar

Ágústa Ísleifsdóttir öryrki segir að líf á þessum launum sé stöðug niðurlæging. 20 hvers mánaðar þurfi hún að byrja að hringja í systkini sín eða aðra ættingja og slá lán fyrir mat. Þetta sé líf án reisnar.

Ellen Calmon formaður Öryrkjabandalagsins segir kaldhæðnislegt að stórfelldar kauphækkanir til stjórnmálamanna og æðstu embættismanna séu kynnar á sama tíma og könnun sem sýni að 95 prósent Íslendingar vilji hækka bætur lífeyrisþega.

Þetta línurit sýnir þróun lífeyrisbóta og launa alþingismanna.

Hvað ætli margir kjósendur setji það í forgang að hækka laun stjórnmálamanna?

 

Prósentuhækkanir hygla þeim sem hafa mest

Ellen bendir á að þegar verið sé að ræða prósentuhækkanir til öryrkja sé um svo lágar upphæðir að ræða að þær hafi sáralítil áhrif á heildarmyndina. Þeir séu að hækka um fimmþúsund krónur samkvæmt meðan stjórnmálamenn og æðstu embættismenn sem taka laun samkvæmt Kjararáði séu að hækka um tugi eða hundruð þúsunda.

Fundarmenn skoruðu í lokin á þingmenn að hafa áhrif á fjárlagagerð ríkisins fyrir árið 2016 og tryggja að lífeyrir almannatrygginga hækki afturvirkt um sömu krónutölu og lægstu laun hækkuðu 1. Maí, það er um 31.000 kr. fyrir skatt og að lífeyrir almannatrygginga verði hækkaður um fimmtán þúsund. frá 1. maí 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×