Innlent

Íslendingar næst hamingjusamastir

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Íslendingar eru næst hamingjusamastir í heimi.
Íslendingar eru næst hamingjusamastir í heimi. Vísir/Daníel
Íslendingar eru næst hamingjusamastir í heimi samkvæmt árlegri samantekt fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Í fyrra vermdi Ísland níunda sætið. Svisslendingar eru hamingjusamastir. Í þriðja sæti eru Danir.

Íbúar Tógó eru óhamingjusamastir. Á undan eru íbúar Búrúndí.

Hamingja er metin meðal annars út frá þjóðarframleiðslu, félagslegum stuðningi, lífslíkum, einstaklingsfrelsi, gjafmildi og upplifun af spillingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×