Fótbolti

Íslendingar í sex neðstu liðum sænsku úrvalsdeildarinnar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kristinn Steindórsson og félagar í Halmstad eru í sjötta neðsta sæti en þó í fínum málum.
Kristinn Steindórsson og félagar í Halmstad eru í sjötta neðsta sæti en þó í fínum málum. mynd/hbk.se
Þegar fjórar umferðir eru eftir af sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta eru sex neðstu liðin í deildinni „Íslendingalið“.

Í heildina spila íslenskir knattspyrnumenn með átta liðum af sextán í deildinni; eitt er í toppbaráttunni, annað um miðja deild og hin sex í neðstu sætunum sem fyrr segir.

Brommapojkarna, sem bakvörðurinn KristinnJónsson leikur með, er á botninum með aðeins níu stig og er fallið úr deildinni þar sem næstu lið eru með 26 stig og aðeins tólf stig eftir í pottinum.

Arnór Ingvi Traustason.mynd/norrköping
Norrköping (Arnór Ingvi Traustason), Falkenberg (Halldór Orri Björnsson) og Gefle (Skúli Jón Friðgeirsson) eru í sætum 13-16 og öll með 26 stig í harðri fallbaráttu og nokkuð líklegt að eitt þeirra fari a.m.k. í umspil um áframhaldandi veru í efstu deild.

Þar fyrir ofan í tólfta sæti er lið Mjällby sem miðvörðurinn GuðmannÞórisson leikur með, en það er með 28 stig og einnig í mikilli fallhættu.

Halmstad, með þá Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson innanborðs, er þar fyrir ofan í ellefta sæti en þó með 33 stig og í mun betri málum.

Hjálmar Jónsson og félagar hans í stórliðinu IFK Gautaborg eru við hinn enda töflurnnar í öðru sæti með 47 stig, níu stigum á eftir verðandi meisturum Malmö. Hjálmar, sem hefur verið fastamaður í vörn liðsins undanfarin ár, hefur aðeins spilað níu leiki í deildinni til þessa.

Helsingborg er svo í áttunda sæti sænsku úrvalsdeildarinar með 36 stig og laust við falldrauginn, en með því spila Arnór Smárason og Guðlaugur Victor Pálsson sem kom til þess á miðri leiktíð og hefur slegið í gegn.

Kalmar og Åtvidaberg eru í níunda og tíunda sæti á milli Helsingborg og Halmstad með 35 og 34 stig og nokkuð örugg um áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni. Það virðist nokkuð augljóst að tvö Íslendingalið fara niður í B-deildina og annað fer í umspilið við lið úr B-deildinni.

Það er einmitt Íslendingaliðið Sundsvall sem er í þriðja sæti B-deildarinnar sem stendur þegar fjórar umferðir eru eftir í henni. Það gæti því mætt öðru Íslendingaliði í umspilinu þriðja árið í röð, en Halmstad og Sundsvall mættust í fyrra og árið þar áður. Með Sundsvall leika þeir Rúnar Már Sigurjónsson og Jón Guðni Fjóluson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×