Innlent

Íslendingar halda sig nálægt heimahögum

Mynd//Pjetur
Íslendingar sækjast helst eftir sumarhúsum nálægt heimili sínu á meðan Svíar, Norðmenn og Danir setja það í fyrsta sæti að hafa sumarhúsin sín við sjóinn. Þetta kemur fram í nýrri samnorrænni könnun meðal fasteignarsala, en 89% þeirra sem svöruðu könnuninni á Íslandi nefndu fjarlægð frá heimili þegar þeir voru inntir um þau sjónarmið sem helst hafi áhrif á eftirspurn eftir sumarhúsum.

Næst mikilvægast þótti umhverfið en 72% nefndu það, 42% tóku fram staðsetningu við vatn og svo sögðu 38% það mikilvægt að stutt sé í þjónustu.

21% sænskra fasteignasala töldu svo gestahús hafa mikil áhrif á kaupáhuga fólks, 10% þeirra dönsku og 1% þeirra norsku, en hjá íslenskum fasteignasölum var hinsvegar enginn sem nefndi þann kost.

Aðspurður hvort þetta sé vísbending þess að Íslendingar séu minnst gestrisnir Norðurlandaþjóðanna segist Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, frekar vilja túlka niðurstöðurnar sem svo að Íslendingar vilji helst njóta nálægðar vina og fjölskyldu sem komi í heimsókn og hafi þar af leiðandi lítinn áhuga á því að senda þau í aðskilin gestahús.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×