Innlent

Íslendingar hafa bjargað 871 flóttamönnum við hrikalegar aðstæður

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Jóhanna heldur um höfuð flóttamanns sem bjargað var úr sjávarháska.
Jóhanna heldur um höfuð flóttamanns sem bjargað var úr sjávarháska. Mynd/Þórir
Áhöfnin á Responder, björgunarskipi Rauða krossins á Miðjarðarhafi, hefur bjargað 871 flóttamanni upp úr ára- og gúmbátum, sem vonlaust var að kæmist annars á leiðarenda.

Þetta segir Þórir Guðmundsson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi og meðlimur áhafnar Responder.

Þórir og Jóhanna Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur starfa á Responder fyrir hönd Rauða krossins á Íslandi.

„Við erum 27 manns á skipinu og ég finn mjög fyrir því að það gera sér allir grein fyrir alvarleika þessa verkefnis,“ segir Þórir. Þau Jóhanna hafa verið á Responder í þrjár vikur og verða í áhöfninni fram undir lok mánaðar.

Þórir Guðmundsson
Þórir segir aðstæður geta verið hrikalegar. „Á síðustu vikum hafa félagar okkar sem hafa verið lengur í skipinu líka komið að þar sem lík fólks – karla, kvenna og barna – hafa legið í bátunum. Fólk hefur líka drukknað þegar bátarnir sökkva eða þeim hvolfir,“ segir hann. Þegar rólegt sé leyfi hópurinn sér að spjalla og gantast en alvaran sé aldrei langt undan.

„Þannig vorum við á þriðjudagskvöld búin að útiloka að fleiri flóttamannabátar kæmu í ljós og vorum að klára kvöldmatinn þegar Jóhanna steig út á þilfar og heyrði þá hróp og köll. Þá var þarna gúmbátur fullur af fólki,“ segir Þórir.

Báturinn sást ekki á ratsjá og ef Re­sponder hefði ekki verið í nánd hefðu þeir 99 flóttamenn sem voru í bátnum líklega farist.

Á miðvikudag bjargaði áhöfnin fólki úr þremur bátum til viðbótar og eru nú 554 flóttamenn um borð í Responder. 

Þórir segir fyrirliða Rauða krossins í skipinu vera Erítreumanninn Abdel. Hann fór sjálfur sömu leið og flóttamennirnir sem nú er bjargað fyrir fimm árum og starfar í dag fyrir ítalska Rauða krossinn.

„Svo skemmtilega vill til að þegar sendinefnd kom frá Íslandi til að skoða flóttamannamál þá varð hann meðal annarra fyrir svörum.“

Rauði krossinn á Íslandi stendur nú fyrir söfnun vegna verkefnanna á Miðjarðarhafi. Hægt er að hringja í 904-1500, 904-2500 og 904-5500 til þess að styrkja um 1.500, 2.500 og 5.500 krónur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×