Fótbolti

Íslendingar geta mætt risaliðum í Þjóðadeildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það kemur í ljós í dag hverjir verða mótherjar íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í Þjóðadeild UEFA sem hefst í september. Með tilkomu þessarar nýju keppni fækkar vináttulandsleikjum til muna og keppnisleikjum fjölgar.

Drátturinn í Þjóðadeildina verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD klukkan 10.40.

Búið er að skipta 55 Evrópuþjóðum niður í fjórar deildir en skiptingin réðst af landsliðsstuðli UEFA eftir undankeppni HM 2018. Tólf lið eru í A- og B-deild, 15 lið í C-deild og 16 lið í D-deild.

Íslenska karlalandsliðið er í ­A-deild þar sem leikið verður í fjórum þriggja liða riðlum. Leikið er heima og heiman. Tveir leikir fara fram í september næstkomandi, tveir í október og tveir í nóvember.

Íslenska liðið verður í potti 3 ásamt Póllandi, Króatíu og Hollandi þegar dregið verður í dag.

Heimsmeistarar Þýskalands, Evrópumeistarar Portúgals, Belgía og Spánn eru í potti 1 og í potti 2 eru Frakkland, England, Sviss og Ítalía. Það er því ljóst að strákarnir okkar fá verðug verkefni í þessari nýju keppni sem er búin að vera í nokkur ár í burðarliðnum hjá UEFA.

Sigurvegarar riðlanna fjögurra í A-deild komast áfram í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar sem fer fram í júní á næsta ári. Eitt af þessum liðum sér um að halda þá keppni. Þar verða leiknir tveir undanúrslitaleikir, úrslita- og bronsleikur.

Liðin sem lenda í þriðja og neðsta sæti riðlanna fjögurra í A-deild falla niður í B-deild fyrir Þjóðadeildina 2020-21. Sæti þeirra taka sigurvegarar riðlanna í B-deild.

Þjóðadeildin gefur einnig fjögur sæti í lokakeppni EM 2020, eitt sæti fyrir hverja deild. Þetta eykur möguleika lakari liða Evrópu á að komast í lokakeppni EM.

Hefðbundin undankeppni EM verður leikin 2019, frá mars til nóvember, og komast 20 lið í lokakeppnina í gegnum hana. Þau lið sem hafa ekki enn tryggt sér sæti í lokakeppninni fá annan möguleika á því í gegnum umspil. Fjögur lið úr hverri deild Þjóðadeildarinnar keppa sín á milli um síðustu fjögur lausu sætin á EM. Umspilið fer fram í mars 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×