Sport

Íslendingar gera það gott

Bjarni Þór Sigurðsson skrifar frá Herning. skrifar
Sigurbjörn Bárðarson á Jarli frá Mið-Fossum
Sigurbjörn Bárðarson á Jarli frá Mið-Fossum Vísir/Jón Björnsson
Íslenskur keppandi leiðir forkeppnina í tölti á heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fer um þessar mundir í Herning í Danmörku. Tveir aðrir íslenskir keppendur eru í efstu fimm sætunum.

Jóhann Skúlason og Garpur fra Højgaarden leiða forkeppnina í tölti þegar hún er rúmlega hálfnuð með einkunnina 8.07. „Gamli maðurinn“ Sigurbjörn Bárðarson á Jarli frá Mið-Fossum situr í þriðja sæti með einkunnina 7,93 og fast á hæla þeirra kemur Kristín Lárusdóttir á Þokka frá Efstu-Grund í fjórða sæti með einkunnina 7,77. Ef fram heldur sem horfir verða þrír bláir jakkar í úrslitum töltsins rétt fyrir hádegi á sunnudag.



Kristín átti góða sýningu á Þokka.Vísir/Jón Björnsson


Sigurbjörn reið á vaðið í morgun og var fyrstur allra keppenda í braut. Jóhann og Kristín voru einnig meðal þeirra fyrstu sem hófu keppni. Norðmaðurinn Niels Christian Larsen á Victor fra Diisa er annar með 8,00 og Caroline Poulsen frá Danmörku er í fimmta sæti.

Jóhann á kunnuglegum slóðum í efsta sæti.Vísir/Jón Björnsson


Skoða má ráslista forkeppninnar í tölti 
hér auk þess að nálgast má dóma í keppninni hérBein útsending frá keppni á heimsmeistaramótinu er á heimasíðu keppninnar.


Tengdar fréttir

Íslenskur knapi fluttur á sjúkrahús eftir fall

Talið er að ístaðsól hafi slitnað þegar Agnar Snorri Stefánsson var að hægja niður ferðina af stökki með þeim afleiðingum af hann féll af baki og lenti á nálægu grindverki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×