Leikjavísir

Íslendingar gera GameBoy leiki

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Skúli Óskarsson keppir með leikinn Wild Goose Chase þar sem leikmenn þurfa að elta gæs nokkra í gegnum allskonar hindranir.
Skúli Óskarsson keppir með leikinn Wild Goose Chase þar sem leikmenn þurfa að elta gæs nokkra í gegnum allskonar hindranir. Vísir/Vilhelm
Fimm íslendingar þátt í keppninni BGJAM hvar þeir keppast um hver býr til besta leikinn í GameBoy þema. Skúli Óskarsson er einn þeirra en hann hefur fiktað við tölvuleikjagerð í nokkur ár.

„Ég hef verið að dóla mér við leikjagerð í svona 3 ár. Það hefur eitthvað farið á netið frá mér, en ég er bara búinn að vera fastur í því að æfa mig. Ég hef alltaf verið svo hræddur við að mistakast að ég hef aldrei skellt mér almennilega í djúpu laugina. Það var ekki fyrr en á þessu ári þar sem ég fór að taka mig á. Leikurinn fyrir þessa keppni er það stærsta sem ég hef gert. En það er bara byrjunin, því að stefnan er að búa til alveg heilan helling af leikjum og ég er nú þegar byrjaður á næsta verkefni,“ segir Skúli Óskarsson einn af þeim íslendingum sem taka þátt í keppninni.

„Fólk virðist vera mjög hrifið af leiknum sem ég gerði fyrir þessa keppni og margir hafa spurt hvort ég ætli að gefa út fleiri borð fyrir hann. Ég mun samt líklega hafa hann eins og hann er, en mig langar að þróa hann aðeins meira og gera hann stærri og flottari,“ segir Skúli aðspurður út hvernig hann metur sigurlíkur sínar í keppninni og hvað sé framundan hjá honum.

Hvernig staðan í tölvuleikjagerð hér á landi?

„Leikjasamfélagið á Íslandi er alveg frábært, þó að það hafi verið í dvala í smá tíma er komin mikil gróska, fleiri fyrirtæki og það eru hittingar í hverjum mánuði. Við erum líka með samskiptarás á Slack með yfir 90 meðlimum sem er mjög virk. Á meðan keppnin var í gangi þá vorum við 5 sem tókum þátt að senda skjáskot og pælingar alveg á fullu. Ferlið frá upphafi til enda var alveg ótrúlega skemmtilegt

Núna þar sem hún er búin er maður bara að bíða spenntur eftir að kosningum lýkur svo að maður geti séð hversu vel maður stóð sig, en ég hef mikla trú um að þeir leikir sem komu frá Íslandi eigi eftir að koma mjög vel út. Ég var mjög feiminn við að deila hlutum á samskiptarásinni fyrst, en núna er ég farinn að senda nánast allt sem ég geri og ég er óendanlega þakklátur fyrir alla þá hvatningu og endurgjöf sem ég hef fengið. Og ég mæli með að fleiri geri það sama. Því að hópurinn er mjög stór og það eru margir þarna inni með mikla reynslu á geiranum sem vilja hjálpa öðrum,“ segir Skúli að lokum.

Hér má skoða og spila alla leikina sem eru í keppninni.

Hér má spila Wild Goose Chase, leikinn hans Skúla.

Aðrir Íslendingar í keppninni eru:

Charles Palmer með Void-dogs.

Hell-Bent eftir Torfa Ásgeirsson.

Let's Make Games eftir Jóhannes Sigurðsson.

Og Pongpongpongpong eftir Jóhannes G. Þorsteinsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×