Innlent

Íslendingar bregðast við kalli Eyglóar: „Flóttamenn eru mannauður, reynsla og hæfileikar“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Hjálpa þarf flóttafólki að aðlagast samfélaginu á ýmsan máta.
Hjálpa þarf flóttafólki að aðlagast samfélaginu á ýmsan máta. Vísir/EPA/Facebook
Nokkrir Íslendingar hafa nú þegar brugðist kalli Eyglóar Harðardóttur velferðarráðherra en hún segir það grundvallast á því hversu mikið hinn almenni Íslendingur er tilbúinn til þess að leggja á sig hversu mörgum flóttamönnum landið getur tekið á móti. Þetta sagði hún í Sprengisandi í morgun.

Bryndís Björgvinsdóttir stofnaði eftir viðtalið við Eygló Facebook-viðburðinn: „Kæra Eygló Harðar – Sýrland kallar“ í því skyni að sýna stjórnvöldum að vilji sé meðal almennings að taka á móti enn fleiri flóttamönnum á Sýrlandi en hefur verið rætt um. Ísland hefur skuldbundið sig til að taka á móti fimmtíu flóttamönnum en stjórnvöld hafa verið hvött til að hækka þá tölu umtalsvert.

Sjá einnig: Velferðarráðherra vill ekki setja hámarkstölu á fjölda flóttafólks til Íslands

Eygló Harðardóttir segir ríkisstjórnina skoða möguleikana á því að taka við fleiri flóttamönnum en 50.Fréttablaðið/Ernir
Í viðburðinum óskar Bryndís eftir dvalar- og atvinnuleyfi ásamt kennitölu og helstu mannréttindum fyrir fimm Sýrlendinga. „Ég veit um mann sem getur hýst þá og gefið þeim að borða en ég skal borga undir þá flugið og kynna þá fyrir landi og þjóð. Í blöðunum segir að Íslendingar geti hugsað sér að taka á móti 50 Sýrlendingum en með þessu yrðu þeir 55,“ skrifar Bryndís.

Munum aldrei geta sagt „þitt líf er minna virði en mitt líf“

Í viðburðinum er fólk ekki aðeins hvatt til þess að sýna að það sé tilbúið til að leggja hönd á plóg heldur er einnig kallað eftir hugmyndum um hvernig Íslendingar geta aðstoðað allan þann fjölda flóttamanna sem flýja nú stríðshrjáð heimalönd sín. Í síðasta mánuði komu 107 þúsund flóttamenn yfir landamæri Evrópulanda sem er met.

„Flóttamenn eru mannauður, reynsla og hæfileikar. Flóttafólk er framtíðarmakar okkar, bestu vinkonur, næsti sálufélagi, trommarinn í hljómveit barnanna okkar, næsti samstarfsmaður, ungfrú Ísland 2022, smiðurinn sem tekur baðherbergið loksins í gegn, kokkurinn í mötuneytinu, slökkviliðsmaður, hakkari og þáttastjórnandi. Fólk sem við eigum aldrei eftir að geta sagt við í framtíðinni: „Þitt líf er minna virði en mitt líf.“ En af hverju látum við samt eins og svo sé?“ segir í viðburðinum.

Þar hafa fjölmargir íbúar hér á landi sagst vilja hjálpa til.

„Sæl, ég heiti Unnur og er framhaldsskólakennari og aðjúnkt við HÍ. Ég er til í að kenna ungmennum í sjálfboðastarfi ‪#‎þettaskaléggera,“ skrifar Unnur Gísladóttir.

„Ég get gefið fullt af barnafötum, barnabækur, taubleiur og ýmsa barnavöru. Ég get líka verið með listasmiðju fyrir börnin og gefið málningu og annað efni í það,“ skrifar Bergrún Íris Sævarsdóttir.

„Kæra Eygló Harðar. Èg býð mig fram til þess að hýsa 1-2 fjölskyldur frá Sýrlandi á heimili mínu. Ég óska hér með eftir landvistarleyfum, kennitölum og öllu því sem innflytjendur þurfa til þess að teljast gjaldgengir ríkisborgarar hér á landi. Með þessu vil ég hækka tölu flóttamannanna sem Ísland tekur á móti um sem nemur 1-2 fjölskyldum. Með samvinnu trúi ég að við getum gefið fleiri Sýrlendingum nýja og bjartari framtíð,“ skrifar Lukka Sigurðardóttir.

Viðburðinn má sjá hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×