Handbolti

Íslendingaliðin með nauma sigra í Þýskalandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Arnór Þór Gunnarsson
Arnór Þór Gunnarsson
Bergischer lagði Lübbecke 28-27 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og Gummersbach marði Lemgo 29-28 á sama tíma.

Arnór Þór Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Bergischer og Björgvin Páll Gústavsson varði 7 skot í marki liðsins.

Bergischer var 14-12 yfir í hálfleik en leikurinn var í járnum allan leikinn. Bergischer er um miðja deild með 15 stig en Lübbecke er með stigi minna.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach sem var 17-15 yfir í hálfleik gegn Lemgo.

Gummersbach er með 16 stig en Lemgo er í bullandi fallbaráttu með aðeins 6 stig í 13 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×