Lífið

Íslandsvinurinn Justin Timberlake óþekkjanlegur í auglýsingu fyrir tekíla

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Timberlake lítur út eins og meðlimur Blue Man Group með vatnshöfuð sem misst hefur fötu af gulri málningu yfir sig.
Timberlake lítur út eins og meðlimur Blue Man Group með vatnshöfuð sem misst hefur fötu af gulri málningu yfir sig.
Það er löngu vitað að Íslandsvinurinn Justin Timberlake er algert kamelljón. Áður var hann í strákabandi en hóf síðar sólóferil. Þaðan lá leiðin í grínmyndir áður en hann reyndi fyrir sér í hádramatískum myndum með ágætis árangri. Það sem færri vita er að Timberlake hefur haslað sér völl í áfengisbransanum.

Árið 2009 hóf hann að selja tekíla sem þá kallaðist 901. Nafnið er vísun í uppruna Timberlake en 901 er svæðisnúmer Memphis. Á síðasta ári urðu Sauza og 901 að einu og í kjölfarið var ákveðið að gera metnaðarfulla auglýsingu þar sem Timberlake leikur aðalhlutverkið.

Þúsundþjalasmiðurinn geðþekki er óþekkjanlegur í myndbandinu en þar leikur hann lime mann sem er ekki lengur stjarna eftir að Sauza 901 varð til. Með því vilja menn benda á að lime sé í raun óþarft þar sem Sauza 901 sé svo stórkostlegt tekíla.

Leiksigurinn má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Justin Timberlake kyssti bumbuna

Söngvarinn Justin Timberlake og eiginkona hans, leikkonan Jessica Biel, eiga von á sínu fyrsta barni innan skamms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×