Viðskipti innlent

Íslandssjóður með þrjá nýja starfsmenn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingólfur Snorri, Helga Óskarsdóttir og Birgir Ottó.
Ingólfur Snorri, Helga Óskarsdóttir og Birgir Ottó. myndir/aðsendar
Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka, hefur lokið ráðningum í þrjú störf.  Íslandssjóðir hf. er sérhæft félag á sviði sjóðastýringar með um 115 milljarða króna í stýringu frá viðskiptavinum sem hafa fjárfest í verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum félagsins en auk þess stýrir félagið sérhæfðum fagfjárfestasjóðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Ingólfur Snorri Kristjánsson, hefur verið ráðinn forstöðumaður skuldabréfastýringar Íslandssjóða. Undanfarin átta ár hefur hann starfað hjá markaðsviðskiptum Arion banka og forverum hans. Síðustu ár hefur hann starfað við miðlun á skuldabréfum til fagfjárfesta en þar áður við gjaldeyris- og afleiðumiðlun.

Á árunum 2003-2007 starfaði hann hjá eignastýringu Íslandsbanka og hjá forvera Íslandssjóða, Rekstrarfélagi Íslandsbanka, þar sem hann gegndi starfi sjóðsstjóra erlendra hlutabréfasjóða. Ingólfur Snorri hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og  er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.

Helga Óskarsdóttir, hefur verið ráðin sjóðsstjóri í skuldabréfastýringu. Helga hefur starfað hjá Íslandsbanka og forverum hans frá árinu 2006. Hún hefur lengst af starfað við verðbréfamiðlun þar sem hún hefur miðlað skuldabréfum til fagfjárfesta og haft umsjón með skuldabréfaútgáfum. Áður starfaði hún í afleiðudeild þar sem hún sá um vaxtaafleiður. Helga hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og  er með B.Sc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Birgir Ottó Hillers, hefur verið ráðinn lögfræðingur Íslandssjóða. Birgir hefur frá árinu 2014 starfað í Regluvörslu Íslandsbanka. Þar áður starfaði hann um fimm ára skeið hjá Fjármálaeftirlitinu á verðbréfasviði og við rannsóknir og vettvangs- og verðbréfaeftirlit. Birgir Ottó er með meistaragráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík og B.A. gráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hann er með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×