Bílar

Íslandspóstur og Ölgerðin fá fyrstu rafsendibíla landsins

Finnur Thorlacius skrifar
Renault Kangoo rafmagnssendibíll.
Renault Kangoo rafmagnssendibíll.
Íslandspóstur og Ölgerðin fengu í vikunni afhenta fyrstu rafsendibílana sem fyrirtækin hafa fest kaup á. Bílarnir eru af gerðinni Renault Kangoo og eru þeir jafnframt fyrstu sendibílarnir á götum landsins sem eru alfarið rafknúnir.

Svo skemmtilega vildi til að bílarnir voru jafnframt tvöþúsundasti og tvöþúsundasti og fyrsti bíllinn sem bílaumboðið BL ehf afhenti á árinu. Renault Kangoo EV rafmagnbílarnir eru 60 hestöfl og miðað við íslenskrar veðuraðstæður draga þeir allt að 120 km á rafhleðslunni.

Burðargeta Kangoo EV er 610 kg, örlítið meiri en dísilbíla sömu gerðar auk þess sem staðalbúnaður er meiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×