Viðskipti innlent

Íslandspóstur fer í miklar breytingar

Samúel Karl Ólason skrifar
Íslandspóstur telur, samkvæmt tilkynningu, að þær aðgerðir sem ráðist verður í á grundvelli sáttarinnar séu fyrirtækinu og rekstrarumhverfi þess til hagsbóta.
Íslandspóstur telur, samkvæmt tilkynningu, að þær aðgerðir sem ráðist verður í á grundvelli sáttarinnar séu fyrirtækinu og rekstrarumhverfi þess til hagsbóta. Vísir/ernir
Íslandspóstur og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér sátt vegna nokkurra mála sem hafa verið til meðferðar hjá eftirlitinu undanfarin ár. Íslandspóstur skuldbindur sig til þess að hlíta ítarlegum skilyrðum og gera breytingar á starfsemi sinni sem Samkeppniseftirlitið telur vinna gegn samkeppnishömlum sem rekja megi til einkaréttar á dreifingu áritaðra bréfa.

Íslandspóstur telur, samkvæmt tilkynningu, að þær aðgerðir sem ráðist verður í á grundvelli sáttarinnar séu fyrirtækinu og rekstrarumhverfi þess til hagsbóta.

Á vef Samkeppniseftirlitsins er farið yfir þær breytingar sem Íslandspóstur þarf að gera.

Ákvæði er varða skipulag samstæðunnar eru einkum eftirfarandi:

Mælt er fyrir um að tiltekin samkeppnisstarfsemi Íslandspósts verði ávallt rekin í aðskildum dótturfélögum. Í þessu skyni þarf Íslandspóstur að færa hraðpóstþjónustu sína út úr móðurfélaginu inn í aðgreint dótturfélag.

Mælt er fyrir um skýra aðgreiningu innan Íslandspósts á milli söluþáttar starfseminnar og kostnaðarúthlutunar. Aðgreiningin vinnur almennt gegn hagsmunaárekstrum og stuðlar að gagnsæi í verðlagningu á vörum. Er með þessu m.a. stuðlað að því að úthlutun kostnaðar félagsins vegna einkaréttarstarfsemi annars vegar og samkeppnisstarfsemi hins vegar eigi sér stað með hlutlægum hætti og raski ekki samkeppni. Aðgreiningin er m.a. tryggð með aðskilnaði í daglegri stjórnun og aðgangsstýringu í húsnæði og upplýsingakerfum.

Skipuð skal sérstök eftirlitsnefnd sem fylgir sáttinni eftir, tekur við kvörtunum og tekur ákvarðanir í samræmi við fyrirmæli sáttarinnar. Nefndin verður hluti af skipulagi fyrirtækisins og skipuð af Íslandspósti, en tilnefningu nefndarmanna skal bera undir Samkeppniseftirlitið til samþykktar eða synjunar. Tveir af þremur nefndarmönnum skulu vera óháðir Íslandspósti.

Samkeppnisstarfsemi sem er óskyld meginstarfsemi fyrirtækisins verði rekin í dótturfélagi, samkvæmt nánari fyrirmælum eftirlitsnefndar.

Skilyrði sáttarinnar er varða starfshætti Íslandspósts eru m.a. eftirfarandi:

Til að auka aðhald og gegnsæi skal gera sérstaka grein fyrir samkeppnisstarfsemi Íslandspósts á heimasíðu félagsins.

Mælt er fyrir um sérstök rekstraruppgjör fyrir hverja slíka samkeppnisstarfsemi til þess að auðvelda eftirlit með m.a. mögulegri víxlniðurgreiðslu frá einkaleyfisrekstri til samkeppnisstarfsemi. Kveðið er ítarlega á um kostnaðarviðmið og forsendur að baki þessum uppgjörum. Á sama hátt skal útbúið sérstakt afkomuyfirlit vegna einkaréttarstarfsemi.

Kveðið er á um hvernig bregðast skuli við tapi á samkeppnisstarfsemi innan móðurfélags, þ.á m. viðbrögð vegna yfirvofandi taprekstrar.

Kveðið er á um armslengd í fjármögnun dótturfélaga. Er Íslandspósti þannig m.a. gert óheimilt að veita dótturfélögum ívilnandi fyrirgreiðslu í formi lána undir markaðsvöxtum og að veita ábyrgðir og veð fyrir lánum dótturfélaga.

Kveðið er á um að viðskipti Íslandspósts og dótturfélaganna skuli fara fram á viðskiptalegum forsendum eins og um viðskipti milli ótengdra aðila væri að ræða. Á það m.a. við um verðlagningu á vörum og þjónustu og meðferð viðskiptaskulda.

Gerðar eru kröfur um rekstrar- og stjórnunarlegt sjálfstæði dótturfélaga, þ.á.m. um tiltekið óhæði í stjórnum og aðgreiningu í húsnæði og upplýsingakerfum.

Kveðið er á um að keppinautar Íslandspósts á sviði póstþjónustu skuli njóta sambærilegra skilmála og kjara í viðskiptum við Íslandspóst og aðrir viðskiptavinir félagsins í sömu stöðu.

Bann er lagt við ómálefnalegri höfnun á viðskiptum við keppinauta á sviði alþjónustu Íslandspósts.

Mælt er fyrir um að í dreifbýli og minni þéttbýlisstöðum sé Íslandspósti skylt að inna af hendi fjölpóstdreifingu fyrir aðra póstrekendur, á sömu kjörum og gegn sömu skilmálum og Íslandspóstur sjálfur nýtur. Skal viðkomandi verðskrá og viðskiptaskilmálar vera skýrir og aðgengilegir fyrir keppinauta.

Mælt er fyrir um gerð samkeppnisréttaráætlunar fyrir Íslandspóst.

„Með framangreindum fyrirmælum er markvisst unnið gegn ýmsum samkeppnishömlum og vantrausti sem endurspeglast í þeim kvörtunum og ábendingum sem borist hafa á liðnum árum. Einkum er lögð áhersla á að koma í veg fyrir að samkeppnisrekstur Íslandspósts njóti með óeðlilegum hætti einkaréttarstarfsemi fyrirtækisins og dregið úr hættu á ýmsum hindrunum sem stafað geta af sterkri stöðu Íslandspósts á markaði,“ segir á vef Samkeppniseftirlitsins.

Enn fremur segir að Ísland sé eina ríkið innan evrópska efnahagssvæðisins sem ekki hafi ákveðið að fella niður einkarétt á póstþjónustu. Það er mat eftirlitsins að fella eigi einkarétt á póstþjónustu niður hér á landið sem fyrst.

„Það er bæði til þess fallið að örva samkeppni og draga úr eftirlitsbyrði. Samhliða er brýnt að sá kostnaður sem hlýst af alþjónustu á sviði póststarfsemi sé dreginn upp á yfirborðið með sem skýrustum og gagnsæjustum hætti. Einn liður í því gæti mögulega falist í því að koma á útboðsfyrirkomulagi um framkvæmd póstdreifingar á afskekktari svæðum, til uppfyllingar alþjónustumarkmiðinu, þ.e. á svæðum sem slík þjónusta ber sig ekki á almennum viðskiptalegum grundvelli. Verði einkarétturinn felldur niður verða skilyrðin sem hvíla á Íslandspósti endurskoðuð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×