Golf

Íslandsmótið í höggleik | Bjarki og Valdís með vallarmet

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir slær hér á 10. teig á Jaðarsvelli í dag.
Valdís Þóra Jónsdóttir slær hér á 10. teig á Jaðarsvelli í dag. Mynd/seth@golf.is
Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness lék best allra í dag á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni sem fram fer á Akureyri um helgina. Bjarki fór hringinn á fimm höggum undir pari. Hann deilir nú efsta sætinu á -7 samanlagt með Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR.

Axel Bóasson úr GK, hafði eins höggs forskot fyrir hringinn í dag, en hann lék á 69 höggum eða -2 og er hann einu höggi á eftir þeim Bjarka og Guðmundur fyrir lokahringinn.

Staða efstu manna fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni 2016: 

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (72-68-66) 206 högg -7

Bjarki Pétursson, GB (72-69-65) 206 högg -7

Aron Snær Júlíusson, GKG (67-73-67) 207 högg -6

Axel Bóasson, GK (71-67-69) 207 högg -6

Andri Már Óskarsson, GHR (73-67-66) 208 högg -5

Haraldur Franklín Magnús, GR (71-71-67) 209 högg -4

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (69-70-71) 210 högg -3

Þórður Rafn Gissurarson, GR (71-71-69) 211 högg -2

Aron Bjarki Bergsson, GKG (70-72-69) 211 högg -2

Gísli Sveinbergsson, GK (72-67-72) 211 högg -2

Rúnar Arnórsson, GK (72-67-72) 211 högg-2

Andri Þór Björnsson, GR (72-73-67) 212 högg -1

Andri Þór Björnsson, GR (72-73-67) 212 högg -1

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG (71-72-70) 213 par

Valdís Þóra Jónsdóttir úr golfklúbbnum Leyni sló dag vallarmet í kvennaflokki á Jaðarsvelli en hún fór hringinn á 66 höggum eða fimm höggum undir pari.

Það stefnir í mikið einvígi á lokahringnum á milli Valdísar og Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur úr GR sem er einu höggi á eftir á -6. Valdís fékk fimm fugla í dag og tapaði ekki höggi en Ólafía lék á 69 höggum eða -2. Þetta kemur fram á vefsíðunni golf.is.

Staða efstu kylfinga fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í golfi á Eimskipsmótaröðinni 2016:

1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL (71-69-66) 206 högg -7

2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR (70-68-69) 207 högg -6

3. Signý Arnórsdóttir, GK (77-68-71) 216 högg +3

4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (72-72-73) 217 högg +4

5. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (75 -75-73) 223 högg +10

6. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (77-76-73) 226 högg +13

7. Berglind Björnsdóttir, GR (75-75-77) 227 högg +14

8. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK (74-79-76) 229 högg +16

Golfsamband Íslands er með beina lýsingu frá mótinu á Twitter-síðu sinni en hægt er að fylgjast með öllu sem gerist á Jaðarsvelli í Twitter-boxinu hér að neðan. Hér má svo finna beina lýsingu holu fyrir holu og hér er hefðbundin staða þar sem hægt er að fletta á milli flokka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×