Íslenski boltinn

Íslandsmeistararnir bæta við sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjarnan á titil að verja í Pepsi-deild kvenna.
Stjarnan á titil að verja í Pepsi-deild kvenna. vísir/valli
Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar hafa gengið frá samningum við tvo leikmenn um að leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar. Þetta kemur fram á Fótbolta.net.

Umræddir leikmenn heita Shannon Woeller og Beverly Leon en þær verða löglegar með Stjörnuliðinu frá og með morgundeginum.

Þær gætu leikið sinn fyrsta leik með Stjörnunni þegar liðið mætir Breiðabliki í Meistarakeppni KSÍ á föstudaginn en búist er við að þessi lið berjist um Íslandsmeistaratitilinn í sumar.

Shannon, sem er 25 ára, er kanadískur varnarmaður. Hún lék síðast með Grand Bodö í norsku úrvalsdeildinni.

Beverly er 23 ára gamall sóknarmaður frá Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×