Íslenski boltinn

Íslandsmeistarar KR i beinni í fyrstu þremur umferðunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Stöð 2 Sport hefur ákveðið hvaða leiki stöðin mun sýna í fyrstu fimm umferðum Pepsi-deildar karla í sumar en sex leikir verða sýndir beint í maímánuði. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ en mótanefnd KSÍ gaf í dag út endanlega niðurröðun fyrir fótboltasumarið.

Stöð 2 Sport eltir Íslandsmeistara KR í þremur fyrstu umferðunum en þá eiga KR-ingar eintóma stórleiki. KR mætir Val, Breiðabliki og FH í þremur fyrstu leikjum sínum og titilvörnin fær því alvöru próf strax í byrjun.

Stöð 2 Sport sýnir einnig þrjá leiki með Val og tvo leiki með Breiðabliki og FH í þessum fimm fyrstu umferðum mótsins.

Það er mikið af stórleikjum í byrjun tímabilsins og Íslandsmótið ætti því að fara vel af stað í ár.



Beinar útsendingar Stöð 2 Sport  í Pepsi-deild karla í maí:

1. umferð

Sunnudagurinn 4. maí: KR - Valur

Mánudagurinn 4. maí:  Breiðablik - FH

2. umferð

Fimmtudagurinn 8. maí: Breiðablik - KR

3. umferð

Mánudagurinn 12. maí:  KR - FH

4. umferð

Mánudagurinn 19. maí: Valur - Fram

5. umferð

Fimmtudagurinn 22. maí: Stjarnan - Valur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×