Handbolti

Íslandsmeistaradagur hjá handboltakrökkunum á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thea Imani Sturludóttir, leikmaður Fylkis, spilar með 3. flokki félagsins.
Thea Imani Sturludóttir, leikmaður Fylkis, spilar með 3. flokki félagsins. Vísir/Valli
Það er ekki bara mikið um að vera í Dalhúsum í kvöld því á morgun munu fara fram úrslitaleikir yngri flokka í handbolta í Íþróttahúsinu í Dalhúsum.

Unglingaráð handknattleiksdeildar Fjölnis hefur veg og vanda að mótahaldi í ár og verður hvergi slegið slöku við samkvæmt frétt á heimasíðu HSÍ.

Þarna er gott tækifæri til að sjá landsliðsmenn- og konur framtíðarinnar keppast um að verða Íslandsmeistarar í handbolta 2016.  

Fyrsti leikurinn hefst klukkan 9.30 um morguninn og sá síðasti ekki fyrr en ellefu tímum síðar. Það verður því samfellt meira en hálfur sólarhringur af handbolta í Dalhúsum á morgun.

Verðlaunaafhending fyrir hvern flokk fyrir sig fer fram strax eftir leik. Veitt  eru verðlaun fyrir besta leikmanninn, auk silfur- og gullverðlauna.

Framarar og Valsmenn eiga flest lið í úrslitum eða þrjú hvor en FH og Fylkir eru bæði með tvö lið. Alls eiga átta félög fulltrúa í úrslitaleik Íslandsmótsins í ár.

Leikjaplan fimmtudagsins 5. maí 2016 er eftirfarandi:

Klukkan 09.30     4.flokkur kvenna yngri    Dalhús      Víkingur – Fram

Klukkan 11.15     4.flokkur karla yngri        Dalhús      FH - Selfoss

Klukkan 13.00     4.flokkur karla eldri         Dalhús      Valur - Fjölnir

Klukkan 14.45     4.flokkur kvenna eldri     Dalhús      Fylkir -Valur

Klukkan 16.30     3.flokkur karla                  Dalhús      ÍBV - FH

Klukkan 18.30     3.flokkur kvenna              Dalhús      Fylkir – Fram

Klukkan  20.30     2.flokkur karla                  Dalhús      Fram - Valur

Leikirnir verða allir sýndir í beinni netútsendingu á Fjölnir TV (fjölnir.tv)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×