Viðskipti innlent

Íslandsbanki kominn í fjárfestingaflokk

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Birna segir að með betri kjörum erlendis geti bankinn stutt enn betur við viðskiptavini sína.
Birna segir að með betri kjörum erlendis geti bankinn stutt enn betur við viðskiptavini sína.
Fitch Ratings birti í dag mat á lánshæfi Íslandsbanka og er bankinn metinn í fjárfestingarflokki með einkunnina BBB-/F3 með stöðugum horfum. Íslandsbanki er fyrstur banka á Íslandi frá árinu 2008 til að komast í fjárfestingarflokk, segir í tilkynningu frá bankanum. Þar segir ennfremur að lánshæfismatið endurspegli sterka stöðu bankans á innlendum markaði og góða eiginfjárstöðu hans.

Í lánshæfismati Fitch kemur fram að endurskipulagning stórs hluta lánasafnsins frá árinu 2008 er nú lokið og að bankinn hafi verið varfærinn í mati á greiðslugetu viðskiptavina niðurfærðra lána. Fitch telur Íslandsbanka jafnframt vel undirbúinn undir afléttingu gjaldeyrishafta.

„Við erum mjög stolt af því að Íslandsbanki, fyrstur banka á Íslandi frá árinu 2008, sé nú kominn í fjárfestingarflokk. Þetta mun auka aðgengi okkar að fjármögnun bæði hér á landi en ekki síst erlendis. Þessi breyting felur í sér að mun fleiri fjárfestar geta nú keypt skuldabréf bankans sem getur svo haft áhrif á bæði eftirspurn og verðlagningu bréfanna,“ segir Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, í tilkynningu. Hún segir ennfremur að með betri kjörum erlendis geti bankinn stutt enn betur við viðskiptavini sína sem þarfnast erlendrar fjármögnunar.“

„Þetta er uppskera mikillar og góðrar vinnu starfsfólks bankans sem hefur miðað að því að byggja upp framúrskarandi fyrirtæki sem eftir er tekið,“ segir Birna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×