Viðskipti innlent

Íslandsbanki gefur út 65 milljarða skuldabréf

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra.
Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra. vísir/vilhelm
Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, eða sem nemur um 65 milljörðum króna, til fjögurra ára. Bréfið ber 1,75 prósent fasta vexti, sem jafngildir 200 punkta álagi yfir millibankavexti í evrum.

Rúmlega tvöföld umframeftirspurn var eftir útgáfunni sem var seld til fjölbreytts hóps fjárfesta frá Bretlandi, Norðurlöndunum og meginlandi Evrópu. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi þann 7. september 2016.

Útgáfan lengir endurgreiðsluferil bankans og lækkar fjármögnunarkostnað. Til stendur að nýta hluta útgáfunnar til að fyrirframgreiða útistandandi skuldir, þar með talið víkjandi skuldabréf að upphæð 138 milljónir evra á gjalddaga 2019. Miðað við fjárhagstölur í lok júní 2016, munu viðskiptin leiða til lækkunar á eiginfjárhlutfalli bankans úr 28,9 prósent í 27,1 prósent, sem er eftir sem áður töluvert yfir kröfum eftirlitsaðila.

Umsjónaraðilar útboðsins voru Bank of America Merrill Lynch, Citigroup, Deutsche Bank AG, JP Morgan og DNB.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×