Viðskipti innlent

Íslandsbanki gefur Seðlabankanum og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Friðrik Sophusson, Sigríður Olgeirsdóttir og Birna Einarsdóttir, frá Íslandsbanka, ásamt Má Gðmundssyni, seðlabankastjóra og Margréti Hallgrímsdóttur, þjóðminjaverði, í dag, við afhendingu munanna.
Friðrik Sophusson, Sigríður Olgeirsdóttir og Birna Einarsdóttir, frá Íslandsbanka, ásamt Má Gðmundssyni, seðlabankastjóra og Margréti Hallgrímsdóttur, þjóðminjaverði, í dag, við afhendingu munanna. Íslandsbanki
Íslandsbanki gaf í dag Seðlabanka Íslands og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn bankans. Munirnir hafa fylgt Íslandsbanka frá stofnun bankans en um er að ræða safn sem samanstendur af 1300 munum, allt frá árinu 1675 til ársins 2000. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Í seðlahluta safnins má meðal annars finna Ríkisdal frá árinu 1815 ásamt prufuprentun á bráðabirgðarseðli bankans sem gefinn var út árið 1919.

Í mynthluta safnsins er elsti vörupeningurinn frá árinu 1846, sem var fyrsti vörupeningurinn. Einnig má nefna brauðpening frá Bökunarfélagi Ísfirðinga sem er eina eintakið sem vitað er að sé til af þeim pening.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, afhenti Má Guðmundssyni seðlabankastjóra, safnið í dag en safnið er til sýnis í Smáralind næstu þrjár vikur í tilefni af Hönnunarmars.

Haft er eftir Birnu Einarsdóttir í tilkynningu: 

„Það er mikil ánægja fyrir okkur að afhenda Seðlabankanum og Þjóðminjasafninu mynt- og seðlasafn bankans til að varðveita áfram þessa sögulegu heimild.

Það er mjög viðeigandi að gera það núna í tengslum við Hönnunarmars þar sem þessar myntir eru margar hverjar mikið listaverk og við vitum safninu verða gerð góð skil.“

Þá lýsir Már yfir mikilli ánægju með gjöfina:

„Það er mjög ánægjulegt að Íslandsbanki skuli afhenda þessa einstæðu gripi Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminjasafns. Munirnir gefa góða innsýn í peningasögu landsmanna og þá sérstaklega hvernig saga seðla og myntar og annarra greiðslumiðla þróaðist á upphafsárum bankastarfsemi á Íslandi. 

Þar má bæði benda á venjulega peninga og svo þá sem í dag teljast óvenjulegir eins og svokallaðir vörupeningar. Auk þess gefur safnið góða innsýn í hönnunarferli og framleiðslu fyrstu seðlanna sem prentaðir voru hérlendis.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×