Íslandsbanki breytir lukkudýrum vegna ábendingar Hildar Lilliendahl Sæunn Gísladóttir skrifar 24. nóvember 2015 15:02 Lýsingum á lukkudýrunum, vinum Georgs, mun verða breytt til að sporna gegn kynjuðum staðalímyndum. Vísir/vilhelm/Stefán
Íslandsbanki hefur ákveðið að breyta lýsingum á lukkudýrum sínum, svokölluðum vinum Georgs, eftir ábendingu á Twitter frá Hildi Lilliendahl. „Þetta er úrelt lýsing á þessum vinum Georgs. Við höfum verið að skoða þetta sjálf og þetta er góð og réttmæt ábending til okkar sem við erum þakklát fyrir. Við ætlum að breyta lýsingunni,“ segir Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka í samtali við Vísi. Lýsingin á vinum Georgs verður tekin til endurskoðunar. Vinir Georgs eru Villi, Nína, Inga og Kristófer. Á meðan Villi er mikið að pæla og spekúlera og Kristófer er að segja brandara eru Nína og Inga holdgervingar staðalímynda. Inga er bleikur nashyrningur og er samkvæmt lýsingu „algjör skvísa og elskar allt sem er bleikt.“ Nína er kanína og er óþolandi af því að hún gerir ekki annað en að tala. „Eina leiðin til að fá Nínu til að hætta að tala er að klappa henni og strjúka henni um eyrun.“ Íslandsbanki tísti til Hildar að bankinn væri sammála Hildi að það yrði að breyta þessu og Hildur tísti til baka að þetta væri vel gert hjá bankanum. @hillldur Sæl Hildur. Takk fyrir mjög góða ábendingu. Við erum búin að vera að skoða þessi mál og erum sammála. Þessu verður breytt— Íslandsbanki (@islandsbanki) November 24, 2015
Mest lesið Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti innlent Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Viðskipti innlent Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Farsímatekjur undir væntingum Viðskipti innlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Viðskipti innlent Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Sjá meira