Tónlist

Ísland snýr aftur á Wacken

Freyr Bjarnason skrifar
Sigurvegari íslensku hljómsveitakeppninnar 2013, Ophidian I, á sviðinu á Wacken.
Sigurvegari íslensku hljómsveitakeppninnar 2013, Ophidian I, á sviðinu á Wacken.
Opnað hefur verið fyrir skráningu í hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle 2015.

Á hverju ári stendur Wacken fyrir hljómsveitakeppninni Metal Battle og verður hún haldin í sjötta sinn á Íslandi í ár. Sex sveitir keppa um stóra hnossið: Að komast á tónlistarhátíðina Wacken Open Air í Þýskalandi og taka þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle.

Ísland snýr aftur í keppnina eftir árs pásu en á síðasta ári komust íslenskir þungarokkarar ekki að. Einungis var pláss fyrir 30 þjóðir í lokakeppninni en um 40 þjóðir eru í pottinum. „Það er rosalega gaman að taka aftur þátt því þetta er skemmtileg hátíð,“ segir skipuleggjandinn, Þorsteinn Kolbeinsson. „Það voru margir sem spurðu mig í fyrra af hverju keppnin hefði ekki verið haldin hér heima, þannig að það eru örugglega mjög margir spenntir núna.“

Sérstök dómnefnd, skipuð bæði innlendum og erlendum dómurum, sér um að velja sigurvegarann hér á landi og eins og áður verður fjölda erlendra gesta; blaðamönnum og tónlistarfólki, boðið til landsins. Auk þess hafa áhorfendur atkvæðisrétt og geta valið sínar uppáhaldssveitir.

Hægt er að skrá sig í keppnina með því að senda kynningarpakka á netfangið thorokol@ gmail.com. Reglur keppninnar má finna á Metal-battle.com. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×