Lífið

Ísland í dag í kvöld: Tók fimm ár að eignast barn

Talið er að um 10-15% para á Íslandi glími við ófrjósemi, þ.e. hafi stundað reglulegt óvarið kynlíf í eitt ár eða lengur án þess að úr verði barn. Þau Karen Einarsdóttir og Björgvin Páll Gústavsson tilheyrðu þessum hópi en eftir eina tæknisæðingu, þrjár heilar glasafrjóvgunarmeðferðir og tvær uppsetningar á frystum fósturvísum tókst ætlunarverkið og Emma Björgvinsdóttir kom í heiminn í ágúst á síðasta ári.

Jákvæðni og jafnaðargeð

Þrátt fyrir erfiðleikana var parið jákvætt.

„Við tókum þessu með jafnaðargeði og vorum ekkert að stressa okkur á þessu þannig séð. En þegar maður er búinn í tveimur, þremur glasafrjóvgunarmeðferðum og ekkert gerist fer maður svolítið að örvænta og þetta tekur auðvitað á,“ segir Karen.

„Þetta er mikil bið og það er eiginlega það erfiðasta.“

 

Parið fann einnig fyrir miklum utanaðkomandi þrýstingi um að eignast barn og skrifaði Karen grein um þá upplifun og viðurkennir að hún telji að fólk ætti að sleppa því að spyrja aðra út í barneignir.

„Þetta getur verið viðkvæmt því maður veit aldrei. Það getur tekið par mánuð eða sex ár að eignast barn.“

Kostir og gallar sem fylgja því að búa úti

Björgvin er atvinnumaður í handbolta og af þeim sökum býr parið í Þýskalandi, fjarri heimahögunum.

„Kostirnir eru þeir að við þurftum ekki að fela þetta fyrir mörgum, við gátum verið í okkar ró og gert þetta á okkar tíma en aftur á móti er minni stuðningur frá fjölskyldu og þetta verður flóknara og erfiðara á öðru tungumáli. Ég held að ég hafi lært fullt af nýjum orðum á þýsku sem ég var ekki nálægt því að læra þegar ég kom út,“ segir Björgvin hlæjandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×