Handbolti

Ísland hefur leik á EM U-18 ára í Póllandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson er í landsliðshópnum.
Óðinn Þór Ríkharðsson er í landsliðshópnum. Heimasíða HK
Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum undir 18 ára hélt í gær til Gdansk í Póllandi þar sem það mun taka þátt í lokakeppni EM í handbolti.

Ísland tryggði sér sæti á mótinu með því að ná 2. sætinu í sínum riðli í forkeppninni sem fór fram í Svíþjóð í janúar.

Ísland hefur leik gegn Serbíu í dag, en leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma.

Klukkan 15:00 á morgun mætir íslenska liðið því sænska og á sunnudaginn klukkan 17:00 leikur Ísland gegn Sviss.

Leikir í milliriðlum verða 18.-20. ágúst og leikir um sæti verða 22.-24. ágúst.

Einar Guðmundsson og Sigursteinn Arndal, þjálfarar liðsins, völdu 16 leikmenn til fararinnar. Þeir eru:

Grétar Ari Guðjónsson – Haukar

Einar Baldvin Baldvinsson - Víkingi

Arnar Freyr Arnarson - Fram

Aron Dagur Pálsson - Grótta

Birkir Benediktsson – Afturelding

Dagur Arnarsson – ÍBV

Egill Magnússon – Stjarnan

Hákon Daði Styrmisson – ÍBV

Henrik Bjarnason – FH

Hlynur Bjarnason – FH

Leonharð Harðarson – Haukar

Óðinn Þór Ríkharðsson – HK

Ómar Ingi Magnússon - Selfoss

Kristján Örn Kristjánsson - Fjölnir

Sigtryggur Rúnarsson – Aue

Sturla Magnússon – Valur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×