Lífið

Ísland Got Talent: Gullinu rigndi yfir Evu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Eva var sú kátasta.
Eva var sú kátasta. Vísir
Söngkonan Eva Margrét heillaði dómara Ísland got talent upp úr skónum í þætti kvöldsins.

Eva steig og stokk og flutti lagið Gæti verið verra úr söngleiknum Grease og negldi hverja einustu nótu eins og hún væri smiður.

Marta María var ekki lengi að þrýsta á sjálfan gullhnappinn, sem sendir þátttakendur beint í undanúrslit, þegar Eva hafði lokið flutningi sínum.

„Það er fædd stjarna hérna. Hún þarf að komast alla leið. Það var bara ekki annað hægt en að ýta á þennan gullhnapp,“ sagði dolfallin Marta.

Flutning Evu má sjá hér að neðan






Fleiri fréttir

Sjá meira


×