Innlent

Ísland gæti misst stöðu sína sem kúariðulaust land

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Stefán
Til þess að Ísland geti viðhaldið stöðu sinni hjá Alþjóðlega dýraheilbrigðismálastofnuninni þarf ákveðinn fjöldi heilasýna úr nautgripum að berast árlega til riðuskimunar. Fram til þessa hafa sýni skilað sér illa til rannsókna og nú er yfirvofandi hætta á að Ísland missi stöðu sína sem kúariðulaust land. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Alþjóðlega dýraheilbrigðismálastofnunin (OIE) hefur viðurkennt Ísland sem kúariðulaust land á sögulegum forsendum. Þar vegur þyngst að  kúariða hefur aldrei greinst hér á landi, lifandi nautgripir hafa ekki verið fluttir inn síðan 1933, bannað hefur verið að flytja inn kjöt- og beinamjöl  síðan 1968 og óheimilt er að fóðra nautgripi á kjöt- og beinamjöli síðan 1978. Þessi alþjóðlega viðurkenning er afar mikilvæg fyrir íslenska nautakjötsframleiðslu og heilnæmi íslensks landbúnaðar. Nánar upplýsingar um sýnatökuna má lesa á vef Matælastofnunar.

Banvænn sjúkdómur

Kúariða er banvænn sjúkdómur sem leggst á heila nautgripa. Sjúkdómurinn er langvinnur og einkennin koma að jafnaði ekki fram fyrr en um 5 ára aldur. Engin meðhöndlun eða bólusetning finnst gegn sjúkdómnum. Einkenni kúariðu minna að mörgu leyti á einkenni riðuveiki hjá sauðfé, þ.e.a.s. taugaeinkenni sem birtast í hegðunarbreytingum og erfiðleikum við hreyfingu.

Talið er að sjúkdómurinn geti borist  í nautgripi ef þeir eru fóðraðir á dýrafóðri, framleitt úr leifum sýktra nautgripa. Fyrsta tilfellið af kúariðu var staðfest í Bretlandi árið 1986. Síðan þá hefur sjúkdómurinn verið staðfestur í fleiri Evrópulöndum, Asíu, Miðausturlöndum og í Norður-Ameríku.

Vísbendingar eru um að tilbrigði kúariðunnar, banvæni hrörnunarsjúkdómurinn Creutzfeldt-Jakob sem leggst á fólk, geti stafað af neyslu sýkts taugavefs eða nautakjöts sem hefur komist í snertingu við sýktan taugavef.

Óska eftir samstarfi

Bestu vísbendingu um heilsufar nautgripa á Íslandi, hvað kúariðu varðar, gefa sýni úr grunsamlegum tilfellum, þ.e.a.s. fullorðnum gripum sem drepast heima á bæ eða er lógað vegna sjúkdóma eða slysa.

Matvælastofnun óskar eftir samstarfi við nautgripabændur við að tryggja þessa miklu hagsmuni landsins, með því að leggja til sýni úr fullorðnum nautgripum sem drepast eða er slátrað heima. Bændur snúa sér þá til síns héraðsdýralæknis og í samráði við þá er tekin ákvörðun hvort eftirlitsdýralæknir frá Matvælastofnun taki sýnin, dýralæknir viðkomandi bús eða bóndinn sjálfur. Í öllum tilfellum er sýnatakan bændum að kostnaðarlausu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×