Fótbolti

Ísland gæti lent í riðli með Englandi, Ítalíu og Danmörku á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Adam Jastrzebowski
Það styttist óðum í það þegar kemur í ljós með hvaða þremur þjóðum Ísland lendir í riðli í úrslitakeppni Evrópumótsins í Frakkalandi næsta sumar.

Ungverjar og Írar hafa tryggt sér sæti á Evrópumótinu í Frakklandi í gegnum umspilið og nú eru bara tvö sæti laus. Það kemur síðan í ljós í kvöld hverjar verða tvær síðustu þjóðirnar sem komast á EM.

Lokaleikir umspilsins fara þá fram í Kaupamannahöfn og í Maribor í Slóveníu. Svíar unnu 2-1 sigur á Dönum í fyrri leiknum en Úkraína vann 2-0 heimasigur á Slóveníu í heimaleik sínum.

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur nú gefið það út hvernig styrkleikaflokkarnir munu líta út þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppninni. Sá dráttur fer fram í París 12. desember næstkomandi.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig styrkleikalistarnir munu líta út eftir því hvaða tvær þjóðir komast áfram í kvöld. Eitt lið úr hverjum flokki verður í hverjum riðli.

Tékkar halda örugglega með Slóveníu í kvöld því ef Slóvenar slá út Úkraínumenn þá fara Tékkar upp um einn styrkleikaflokk, frá þriðja upp í annan.

Ísland verður í fjórða styrkleikaflokki hvernig sem fer og Ísland gæti þannig lent í riðli með Englandi, Ítalíu og Danmörk.

Ísland gæti einnig lent í riðli með Þýskalandi, Króatíu og Svíþjóð. Það er öruggt að menn munu velta betur fyrir sér möguleikunum þegar nær dregur.



Ef Svíþjóð og Úkraína komast áfram:

Flokkur 1: Spánn, Þýskaland, England, Portúgal, Belgía

Flokkur 2: Ítalía, Rússland, Sviss, Austurríki, Króatía, Úkraína.

Flokkur 3: Tékkland, Svíþjóð, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Ungverjaland.

Flokkur 4: Tyrkland, Írland, Ísland, Wales, Albanía, Norður-Írland.



Ef Svíþjóð og Slóvenía komast áfram:

Flokkur 1: Spánn, Þýskaland, England, Portúgal, Belgía

Flokkur 2: Ítalía, Rússland, Sviss, Austurríki, Króatía, Tékkland.

Flokkur 3: Svíþjóð, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Ungverjaland, Tyrkland

Flokkur 4: Írland, Slóvenía, Ísland, Wales, Albanía, Norður-Írland.



Ef Danmörk og Úkraína komast áfram:

Flokkur 1: Spánn, Þýskaland, England, Portúgal, Belgía

Flokkur 2: Ítalía, Rússland, Sviss, Austurríki, Króatía, Úkraína.

Flokkur 3: Tékkland, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Ungverjaland, Danmörk

Flokkur 4: Tyrkland, Írland, Ísland, Wales, Albanía, Norður-Írland.



Ef Danmörk og Slóvenía komast áfram:

Flokkur 1: Spánn, Þýskaland, England, Portúgal, Belgía

Flokkur 2: Ítalía, Rússland, Sviss, Austurríki, Króatía, Tékkland

Flokkur 3: Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Ungverjaland, Danmörk, Tyrkland

Flokkur 4: Írland, Slóvenía, Ísland, Wales, Albanía, Norður-Írland.


Tengdar fréttir

Tvær hliðar íslenska karlalandsliðsins

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur ekki unnið leik síðan liðið komst á EM og slök frammistaða í seinni hálfleik síðustu leikja á mikinn þátt í því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×