Handbolti

Ísland er sigurstranglegra liðið

Henry Birgir Gunnarsson í Katowice skrifar
Hinn leikreyndi Erlend Mamelund var yfirvegaður og með báða fætur á jörðinni er Fréttablaðið hitti hann á blaðamannafundi norska landsliðsins í gær.

„Eftir tíu daga undirbúning er mjög gaman að þetta sé loksins að byrja,“ sagði Mamelund en hann er reyndar ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að mæta Íslandi í fyrsta leik.

„Það er ekki gott að byrja mótið gegn Íslandi því það er alltaf erfitt að mæta íslenska liðinu. Það er orðið langt síðan að við unnum Ísland og mitt mat er að Ísland sé sigurstranglegra liðið,“ sagði Mamelund en norskir blaðamenn eru reyndar ekki á sama máli og hann. Þeir búast við norskum sigri þó svo Noregur hafi ekki unnið Ísland í síðustu níu landsleikjum þjóðanna.

„Þó svo ég telji íslenska liðið vera sigurstranglegra þá eigum við vel möguleika. Þetta verður jafn leikur og úrslitin munu ráðast á síðustu tíu mínútum leiksins. Það er mjög mikilvægt fyrir bæði lið að fá tvö stig í fyrsta leik og við verðum að spila mjög vel til þess að vinna.“

Norðmaðurinn brosti pínu skömmustulega er blaðamaður ítrekaði að Noregur hefði ekki unnið Ísland í átta ár. Hvað þarf Noregur að gera til að vinna leikinn?

„Við verðum að finna leiðir til þess að loka á sóknarleik Íslands. Ég held að hópurinn sem við höfum í dag geti ráðið betur við íslensku sóknina en oft áður.

Mamelund spilar með þýska liðinu Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar. Norðmaðurinn veit að Alfreð verður ekki par sáttur ef norska liðið vinnur.

„Kannski leyfir hann mér ekki að koma aftur til Kiel ef við vinnum,“ sagði Mamelund og brosti breitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×