Erlent

Ísland enn utan makrílsamnings

Atli Ísleifsson skrifar
Makríll.
Makríll. Vísir/Óskar
Ekki náðist samkomulag um skiptingu aflahlutdeildar fyrir næsta ár á árlegum fundi strandríkja um stjórnun makrílveiða í Norðaustanverðu Atlantshafi sem var haldinn í London dagana 21. til 23. október.

Í fréttatilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu segir að á fundinum hafi vísindaráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) verið kynnt sem undirstrikaði sterka stöðu makrílstofnsins. „Jafnframt sýndi hún fram á mikla makrílgengd í íslenskri lögsögu yfir sumartímann þegar makríllinn er í ætisleit.“

Á fundinum náðist ekki samkomulag um skiptingu aflahlutdeildar fyrir næsta ár. Það sem strandaði á var ákvörðun um hlut Íslands af heildaraflanum en eitt strandríki gat ekki fallist á þann hlut Íslands sem önnur strandríki voru reiðubúin að samþykkja.

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það mjög óheppilegt að strandríkin hafi ekki náð samkomulagi um ábyrga stjórn veiða úr þessum mikilvæga stofni. „Það er líka mikið áhyggjuefni að þessi sömu ríki hafa enn ekki náð samkomulagi um stjórnun veiða á öðrum sameiginlegum stofnum uppsjávarfiska á Norðaustanverðu Atlantshafi. Ísland mun hér eftir sem hingað til leggja mikla áherslu á að samningar náist um ábyrga og sjálfbæra nýtingu þessara stofna sem grundvallist á vísindalegri ráðgjöf.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×