Innlent

Ísland eina landið sem kerfisbundið drepur hvítabirni

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hvítabjörninn sem stjórnvöld létu drepa á Hrauni á Skaga í júní 2008.
Hvítabjörninn sem stjórnvöld létu drepa á Hrauni á Skaga í júní 2008.
Hversu lengi ætlar Ísland að vera eina landið í heiminum sem kerfisbundið drepur hvítabirni? Þannig spyr Birgir Guðjónsson læknir og fyrrverandi aðstoðarprófessor við Yale-háskólann í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. 

Birgir gagnrýnir þar íslensk stjórnvöld og sérstaklega Umhverfisstofnun fyrir síendurtekin dráp á hvítabjörnum. Enn einu sinni hafi friðað dýr verið drepið á Íslandi án nokkurrar viðleitni til að forðast dráp. Á síðustu 42 árum hafi tíu birnir verið drepnir hérlendis.

Birnan sem drepin var í sumar á jörðinni Hvalnesi á Skaga.Vísir/Hanna
„Umhverfisstofnum hefur aldrei reynt með skipulögðum undirbúningi að bjarga dýri sem hingað hefur hrakist,“ segir Birgir. Enn hafi ekki fundist menn til að bjarga þeim, „aðeins embættismenn sem leggja til dráp og „vísindamenn“ sem fagna hverju hræi og kryfja og segja frá með stolti að þau séu eins og fyrri dýr.“ 

Hann undrast að á Íslandi virðist litið á þetta tignarlega dýr sem hættulegt meindýr. Þetta stangist mjög á við viðhorf í þjóð- og ríkisgörðum Bandaríkjanna þar sem birnir sem gerist ágengir séu fangaðir, fluttir burtu og afar sjaldan fargað. Þetta sé einnig gert í Churchill í Kanada þar sem nálægð hvítabjarna við mannabyggð sé hvað mest.

Sýni tekin úr birni sem skotinn var á Skaga árið 2008.Vísir/Vilhelm
„Á vefsíðu Umhverfisstofnunar um kynningu á CITES-samningnum um villt dýr í útrýmingarhættu er mynd af hvítabirni og hans getið í viðauka reglugerðar. Fyrsta setningin er eftirfarandi: Nær allar hættur sem steðja að hvítabirninum eru af mannavöldum. Hættan á Íslandi er Umhverfisstofnun,“ segir Birgir Guðjónsson.


Tengdar fréttir

Forðast að skjóta hvítabirnina á Svalbarða

Á Svalbarða forðast menn í lengstu lög að skjóta hvítabirni, enda alfriðaðir, og ef slíkt gerist kallar það undantekningalaust á lögreglurannsókn. Kristján Már Unnarsson var á ísbjarnarslóðum á Svalbarða.

Grænlendingum ráðlagt að nota pottlok gegn hvítabjörnum

Grænlensk stjórnvöld freista þess nú með öllum ráðum að koma í veg fyrir að ísbirnir séu skotnir að óþörfu. Umgengnisreglur hafa verið settar sem banna mönnum að fæða ísbirni og íbúar eru eindregið varaðir við því að elta þá uppi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sjávarútvegs-, veiði- og landbúnaðarráðuneytis Grænlands í tilefni af því að hvítabjörn var skotinn við Nuuk síðastliðinn sunnudag.

Bóndi skaut birnuna og varð steinhissa

Það var bóndi nærri Óslandi í Þistilfirði sem skaut hvítabjörninn í gær en hann hafði enga hugmynd um að ísbjörn væri í sveitinni. Lögreglan í Þórshöfn hafði áður hringt í alla bændur á því sem svæði sem birnan var. Aftur á móti náðist ekki í tvo bændur, sá sem felldi birnuna var annar þeirra.

Biðlað til Svandísar og Jóhönnu að hlífa hvítabjörnum

Alþjóðlegt bænaskjal til þeirra Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, um að hlífa hvítabjörnum, hefur nú verið opnað á netinu og hafa yfir sexhundrað manns þegar skrifað undir. Útlendingar virðast vera í miklum meirihluta.

Björninn felldur þrátt fyrir sérhannað björgunarbúr

Búrið sem nota átti við síðustu björgunartilraun þegar ísbjörn gekk á land nærri Skagafirði er enn á landinu samkvæmt Umhverfisstofnun. Þá náðist ekki að fanga björninn lifandi. Búrið hefur því ekki verið notað. Ákveðið hefur verið að fella björninn þar sem ekki séu uppi ákjósanlegar aðstæður til þess að bjarga honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×