Fótbolti

Ísland besta Norðurlandaþjóðin | Heimir: Þú segir mér fréttir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Heimir með markvarðaþjálfarnum Guðmundi Hreiðarssyni.
Heimir með markvarðaþjálfarnum Guðmundi Hreiðarssyni. Vísir/Andri Marinó
„Ég hef svo litlar áhyggjur af þessu enda skiptir þessi listi ekki svo miklu máli,“ voru fyrstu viðbrögð Heimis Hallgrímssonar af þeim tíðindum að Ísland hafi aldrei verið ofar á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, en nú.

Nýr listi kom út í morgun og var Ísland í 28. sæti. Sigrarnir á Lettlandi og Hollandi fyrr í mánuðinum fleyttu liðinu upp um sex sæti frá síðasta lista og eru strákarnir okkar nú í fyrsta sinn í efsta Norðurlandaþjóðin á listanum.

„Þessi listi skiptir ekki neinu máli fyrr en í lok næsta sumars. Því ofar sem við verðum á listanum þá því meiri líkur á að við verðum í öðrum styrkleikaflokki,“ sagði Heimir.

Í sumar verður styrkleikalistinn notaður til að ákvarða niðurröðun liðanna í styrkleikaflokka fyrir undankeppni HM 2018. Það er í eina skiptið sem listinn skiptir máli að því tilliti því Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, notar eigin útreikninga til að ákvarða styrkleikaröðun fyrir undankeppni EM.

Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson.Vísir/Vilhelm
Ísland sat í 121. sæti listans í júlí 2011 þegar styrkleikaniðurröðunin fyrir undankeppni HM 2014 var ákveðin. Ísland var þá í sjötta og neðsta styrkleikaflokki en endaði engu að síður í öðru sæti síns riðils og komst í umspilið sem frægt er.

Miðað við listann sem kom út í morgun yrði Ísland næstsíðasta þjóðin í öðrum styrkleikaflokki og Heimir vonast til þess að halda þeirri stöðu fram á sumar. „Það virðist þó vera að það þurfi ansi mikið að gerast til að við förum niður,“ segir Heimir sem gleðst þó fyrst og fremst yfir góðu gengi liðsins á vellinum sjálfum.

„Það eru leikirnir sem maður gleðst yfir. Ekki endilega úrslitunum heldur frammistöðu liðsins í leikjunum,“ segir Heimir sem gegnir stöðu landsliðsþjálfara með Lars Lagerbäck eftir að hafa verið aðstoðarmaður Svíans í síðustu undankeppni.

Vísir/Valli
Heimir bendir á að við útreikninga styrkleikalistans er tekið tillit til úrslita leikja síðustu fjögur árin. „Sem þýðir að við förum fljótlega að missa stig sem við unnum sjálfir inn fyrir þremur árum síðan. Þar með kemst meira jafnvægi á þetta ferli. Það þýðir líka að við þurfum að halda okkur á mottunni og halda áfram að safna stigum gegn þeim sem tapast.“

Og auðvitað gleðst hann yfir góðri stöðu Íslands á listanum. „Það er gaman að geta sagt að við höfum aldrei farið hærra. En þetta er bara viðmið og segir ekkert til um hvort við vinnum næsta leik.“

Næsti leikur Íslands verður vináttulandsleikur gegn Belgíu ytra þann 12. nóvember. Fjórum dögum síðar leika strákarnir við Tékka á Plzen í undankeppni EM 2016.


Tengdar fréttir

Strákarnir okkar upp fyrir Dani og Svía

Ísland skilja Dani, Svía, Rússa, Rúmeníu, Skota, Wales, Gana og Serba eftir í rykinu þegar næsti styrkleikalisti FIFA verður birtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×