Sport

Ísland átti 75 prósent af Evrópuliðinu sem vann sögulegan sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdótir og Björgvin Karl Guðmundsson fagna ógurlega
Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdótir og Björgvin Karl Guðmundsson fagna ógurlega The Crossfit Games
Það þarf ekki að koma óvart að lið með Katrínu Tönju Davíðsdóttur og Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur sé líklegt til afreka í keppni í crossfit og það koma líka á daginn um helgina.

Katrín Tanja og Ragnheiður Sara hjálpuðu þá Evrópuliðinu að tryggja sér sigur í liðakeppni, Reebok CrossFit Invitational, sem er jafnframt lokakeppni tímabilsins. Mótið fór fram í Oshawa í Kanada.

Björgvin Karl Guðmundsson var þriðji Íslendingurinn í þessu fjögurra manna liði. Liðið ætti með réttu að heita Ísland (með smá aðstoð frá Evrópu) enda átti Ísland 75 prósent af keppendum liðsins. Í Evrópuliðinu var einnig Svíinn Lukas Högberg en hin breska Samantha Briggs þjálfaði liðið. Samantha Briggs keppti ekki eins og fyrsta var sagt frá í fréttinni.

Þetta er sögulegur sigur því Evrópa hefur aldrei unnið þessa keppni. Fjögur lið kepptu um titilinn en þau komu frá Bandaríkjunum, Evrópu, Kanada og Eyjaálfu (Kyrrahafið).

Katrín Tanja hefur unnið heimsleikana í crossfit undanfarin tvö ár og Ragnheiður Sara hefur endað í þriðja sæti bæði árin. Það kom sér vel fyrir Evrópuliðið að hafa íslensku kjarnakonurnar í fararbroddi.  Björgvin Karl endaði í þriðja sæti í karlakeppninni á síðasta ári og enginn aukvisi heldur.

Evrópska liðið var sigurstranglegra alveg eins og í fyrra en þá þurfti Evrópa samt að horfa á eftir sigrinum til bandaríska liðsins. Það var hinsvegar ekki að fara endurtaka sig núna.

Evrópa vann öruggan sigur en liðið fékk 23 stig út úr greinunum sjö. Evrópa náði öðru sætinu í þremur fyrstu greinunum, vann grein fjögur og grein sjö og gat því leyft sér að enda í þriðja og fjórða sæti í hinum greinunum tveimur.

Bandaríkin fékk sextán stig fyrir greinarnar sjö, Eyjaálfa var með fimmtán stig og heimamenn í kanadíska liðinu ráku lestina með tíu stig. Evrópuliðið vann því með sjö stiga mun.

Svíinn Lukas Högberg hrósaði íslenska fólkinu eftir keppni þegar hann var beðinn um segja frá taktík evrópska liðsins. „Ég reyndi bara að halda í við þetta frábæra íslenska fólk. Þau eru klikkuð,“ sagði Lukas Högberg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×