Golf

Ísland á fimm af hundrað bestu golfvöllum Norðurlanda

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bigir Leifur Hafþórsson að spila Hvaleyrarvöllinn.
Bigir Leifur Hafþórsson að spila Hvaleyrarvöllinn. Vísir/Daníel
Íslendingar geta verið stoltir af sínum golfvöllum en Golfsambandið vekur athygli á athyglisverði grein um bestu golfvelli Norðurlanda.

Hvaleyrarvöllur hjá Golfklúbbnum Keili fær þannig frábæra dóma í sænsku útgáfunni af bandaríska golftímaritinu Golf Digest.

Blaðið birti í nóvember listi yfir 100 bestu golfvellina á Norðurlöndunum. Alls eru fimm íslenskir golfvellir á þessum lista. Nokkrir íslenskir golfsérfræðingar tóku þátt í að búa til listann. Blaðamaður og ljósmyndari frá Golf Digest í Svíþjóð komu hingað til Íslands til að taka út vellina.

„Ég var orðlaus þegar ég leit yfir völlinn á fyrsta teig – ég var samt efins um að þetta væri raunveruleikinn. Ég beið eftir grínholunni en hún kom bara aldrei – þetta er toppvöllur,“ segir í umsögn Golf Digest um Hvaleyrarvöllinn.

Þeir sem komu að því að setja saman listann eru golfvallahönnuðir, PGA kylfingar, PGA kennarar, blaðamenn, fagfólk úr golfiðnaðinum og einstaklingar með mikla þekkingu á golfíþróttinni á Norðurlöndunum.

Hvaleyrarvöllur er í 15. sæti yfir bestu golfvellina á Norðurlöndunum samkvæmt þessari úttekt og tveir íslenskir vellir eru á topp 40 listanum. Aðrir íslenskir vellir sem komast á listann eru Vestmannaeyjavöllur (34.), Brautarholtsvöllur (40.), Korpan (60.) og Grafarholtsvöllur (93.)

„Það er frábært að fá svona umsögn og styrkir okkur í því að gera enn betur í framtíðinni. Á næstu árum verða gerðar umtalsverðar breytingar á Hvaleyrarvelli og við eigum því enn mikið inni. Svona umsögn er hvetjandi fyrir okkur í Keili og ekki síst Hafnarfjarðarbæ að eiga golfvöll sem vekur athygli hjá erlendum kylfingum,“ segir Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis við Golf á Íslandi.

Það er hægt að lesa alla fréttina á golf.is með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×