Skoðun

Ísland – best í heimi?

Sema Erla Serdar skrifar
Þau eru mörg dæmin sem hægt er að telja upp sem gætu rökstutt þá fullyrðingu að Ísland sé best í heimi. Hrein náttúra, lág glæpatíðni, staða jafnréttismála, besti bjórinn, Björk og Bæjarins bestu eru nokkur af þeim dæmum sem við Íslendingar notum óspart til þess að sannfæra okkur sjálf og aðra um að Ísland sé í raun best í heimi.

Annað sem við viljum gjarnan státa okkur af er hið opna og frjálsa lýðræðissamfélag þar sem jafnrétti og réttlæti er við lýði og fólki er ekki mismunað, hvort sem er á grundvelli kyns, kynþáttar, kynhneigðar, trúarbragða, litarhafts eða öðru sem greinir einn einstakling frá öðrum, enda er öllum tekið með opnum örmum hér á Íslandi.

Það eru ekki einungis Íslendingar sem sjá rómantíkina í þessu öllu saman og því hefur Ísland í langan tíma vakið áhuga fólks á landi og þjóð og margir hafa lagt leið sína hingað til þess að kynnast þessari dularfullu, framandi og fjarlægu eyju. Sumir hafa gengið enn lengra og sest hér að, með von um betra líf. Imane Errajea er ein af þeim.

Imane sagði sögu sína í Fréttatímanum. Þar segir hún frá því að hún geti ekki hugsað sér lengur að búa á Íslandi vegna þeirrar framkomu sem fólk hefur sýnt henni þau þrjú ár sem hún hefur búið hér ásamt eiginmanni sínum og barni. Hún segir frá því hvernig fólk hefur forðast hana, ekki viljað kynnast henni vegna uppruna hennar, niðurlægt hana, hunsað hana úti á götu og hvernig hún hefur verið lögð í einelti af hendi starfsmanna Strætó!

Það er ekki annað hægt en að finna fyrir sorg, reiði og skömm eftir slíkan lestur. Að einstaklingum sem koma hingað til lands til þess að finna hamingju, frið og frelsi sé útskúfað úr samfélaginu, hafi aldrei verið jafn einmana og hér á landi og telji sig þurfa að leita til annars lands til þess að börn þeirra fái tækifæri til þess að verða hamingjusöm.

Það er ólíðandi að hér sé einstaklingum mismunað vegna uppruna þeirra, trúarbragða eða húðlitar. Það er ólíðandi að hér sé fólk lagt í einelti vegna þess að það er ekki fætt og uppalið á Íslandi. Það er ólíðandi að hér leyfi menn sér að útskúfa fólki vegna þess að það talar annað tungumál og það er ólíðandi að fólk leyfi sér framkomu eins og Imane lýsir.

Verum áfram það samfélag sem státar sig af náttúruperlum, friði, öryggi og Björk Guðmundsdóttur. Verum ekki það samfélag sem einkennist af þjóðernisrembingi, fordómum og einelti og hrekur í burtu fólk sem hefur ákveðið að koma til Íslands, setjast hér að og hefja nýtt líf.

Það Ísland er langt frá því að vera best í heimi.




Skoðun

Sjá meira


×