Skoðun

Ísland, land tækifæranna

Helga Þórðardóttir skrifar
Í lok árs þá horfir maður gjarnan yfir farinn veg og veltir fyrir sér stöðu þjóðmála. Það sem mér er efst í huga er hversu lítið hefur breyst til batnaðar á Íslandi við eitt mesta bankahrun veraldarsögunnar. Strax eftir hrun voru bundnar miklar vonir við lýðræðisumbætur og flestir voru sammála um að í hruninu fælist tækifæri til breytinga. Því miður gekk það ekki eftir og tilfinningin sem eftir situr er að ekkert hafi breyst og sumt jafnvel versnað.

Það sem stendur upp úr hjá núverandi ríkisstjórn eru minnkaðar álögur á þá ríku og auknar á þá sem minna mega sín. Niðurskurður í velferðarkerfinu samfara orðræðu um einkavæðingu. Sjávarauðlind landsmanna er, þökk sé þessum flokkum, í höndum kvótagreifa og nú á að festa þetta kerfi enn frekar í sessi. Auk þess er farið að ræða um sölu á Landsvirkjun. Ofvaxið bankakerfi ræður öllu og er með ríkisábyrgð á sínum rekstri auk verðtryggingar. Bankarnir og útgerðin ausa milljörðum í eigendur sína, kallast hagnaður, en er ekkert annað en rán frá almenningi.

Fyrrnefndar auðlindir gætu vel verið undirstaða að góðu lífi fyrir alla landsmenn. Þar sem því er ekki þannig farið er augljóst að hlunnindum landsins er misskipt. Þessu verður að breyta og í því er falinn möguleiki okkar. Almenningur verður að vakna og skilja að hann er arðrændur. Við eigum öll þessar auðlindir en ekki fáir útvaldir. Ef okkur tekst í sameiningu að koma á réttlæti þá verða lífsgæði á Íslandi samkeppnishæf við nágrannalöndin.

Stjórnmálasamtökin Dögun hafa á stefnuskrá sinni að breyta. Dögun vill meira vald til almennings til að hafa áhrif á líf sitt, þ.e. beint lýðræði. Dögun vill afnema verðtryggingu á neytendalánum og vill miklar umbætur á fjármálakerfinu. Dögun vill allt aðra skiptingu á arði auðlindanna. Til þess þarf algjöra uppstokkun á stjórn fiskveiða ef almenningur á að njóta arðs af þessari miklu og gjöfulu auðlind. Þessi vegferð sem Dögun vill fara er fyrir hagsæld almennings en hefur þrautir fyrir sérhagsmunaöflin sem nú ráða ferðinni. Ég vil hvetja alla sem eru sammála þessum markmiðum til að taka þátt í starfi Dögunar, stjórnmálasamtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.




Skoðun

Sjá meira


×