Gagnrýni

Ískaldir fingur djasspíanistans

Jónas Sen skrifar
Hold "Lögin virka fyrst og fremst sem bakgrunnstónlist þegar maður vill hafa það huggulegt,“ segir Jónas Sen.
Hold "Lögin virka fyrst og fremst sem bakgrunnstónlist þegar maður vill hafa það huggulegt,“ segir Jónas Sen.
Tónlist:

Hold

Árni Karlsson tríó

Mold Music



Árni Karlsson er framúrskarandi djasspíanóleikari. Hann spilar hér ásamt Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Píanóleikurinn er tær, glitrandi og öruggur. Tímasetningar eru hárnákvæmar, tónahlaupin eru jöfn og óheft, áslátturinn mjúkur og þægilegur áheyrnar. Sömu sögu er að segja um kontrabassaleikinn, sem er skemmtilega líflegur. Trommuleikurinn er líka akkúrat, hóflega afslappaður og svalur.



Öll tónlistin er eftir Árna og hún er einnig útsett af honum. Stemningin er ljúf, samspil hljóðfæraraddanna er fínlega ofið. Þar er hvergi neinu ofaukið, samhljómurinn samsvarar sér prýðilega.



Laglínurnar sjálfar eru þó ekki beint grípandi. Fátt í tónlistinni er virkilega heillandi. Tónlistin er alltaf armslengd í burtu. Lögin virka fyrst og fremst sem bakgrunnstónlist þegar maður vill hafa það huggulegt. Hún er ekkert að trana sér fram, æpir ekki á athygli. Það er því ekki hægt að segja að hún risti djúpt. En stundum er svoleiðis músík engu að síður alveg bráðnauðsynleg.



Niðurstaða: Áheyrileg, nokkuð kuldaleg djasstónlist, en góð til síns brúks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×