Erlent

ISIS liðar tóku fjölda kristna Eþíópíumenn af lífi

Samúel Karl Ólason skrifar
Enskumælandi maður stýrði annarri aftökunni.
Enskumælandi maður stýrði annarri aftökunni.
Vígamenn Íslamska ríkisins í Líbýu tóku tvo hópa kristinna Eþíópíumanna af lífi í nýju myndbandi sem samtökin hafa sent frá sér. Löndunum sem verða fyrir ódæðisverkum ISIS virðist fjölga en í gær sagði forseti Afganistan að samtökin hefðu framkvæmt sjálfsmorðsárás þar í landi þar sem minnst 35 létu lífið.

Myndbandið svipar mjög til þess þegar rúmlega tuttugu kristnir Egyptar voru myrtir í febrúar. Þá gerðu Egyptar loftárásir gegn ISIS í Líbýu. Ekki er ljóst hvort að Eþíópí muni eða geti brugðist við á svipaðan hátt.

AP fréttaveitan hefur eftir talsmanni yfirvalda í Eþíópíu að verið sé að ganga úr skugga um að myndbandið sé raunverulegt. Redwan Hussein taldi líklegt að um flóttamenn væri að ræða sem hefðu farið til Líbýu til að reyna að komast til Evrópu.

„Fáist þetta staðfest, reynist þetta vera hætta fyrir þá sem reyna að ferðast þessa hættulegu leið til Evrópu.“

Annar hluti Eþíópíumannanna er tekinn lífi á strönd í Líbýu.
Í myndbandinu sjást vígamenn eyðileggja kirkjur, leiði og önnur trúartákn. Þá sést enskumælandi maður hóta kristnu fólki á yfirráðarsvæði þeirra og segir að annað hvort snúist þau til Íslam eða borgi sérstakan skatt.

Annar hópurinn er í haldi ISIS í Barqa héraði í Austur-Líbýu. Hinn hópurinn er í haldi í Fazzan héraði í suðurhluta landsins. Ekki er vitað nákvæmlega hve margir menn voru teknir af lífi, en ljóst er að þeir voru minnst tuttugu.

Mennirnir í öðrum hópnum er leiddir á strönd þar sem þeir eru afhöðvaðir en hinir eru skotnir í höfuðið.

„Ég tel þetta vera enn eitt atvikið þar sem ISIS drepa kristið fólk í nafni Íslam,“ segir Abba Kaletsidk Mulugeta hjá Rétttrúnaðarkirkjunni í Eþíópíu. Hann segir ódæði sem þessi vera ólíðandi. „Engin trú boðar morð á fólki og ekki morð á fólki sem er annarrar trúar.“

Hinum mönnunum var haldið í eyðimörk.
Samtökin stjórna um einum þriðja af Sýrlandi og Írak. Þar að auki eru vígamenn ISIS starfandi í Afganistan, Jemen, Egyptalandi og Líbýu. Þá hafa Boko Haram, hryðjuverkasamtökin í Nígeríu, lýst sig hliðholl ISIS.

ISIS hafa sótt fram í Írak síðustu misseri. Þrátt fyrir það hefur heinn í Írak, studdur af vopnuðum sveitum Sjíta og loftárásum, sótt hart fram gegn samtökunum. Þar að auki hafa Kúrdar endurheimt um ellefu þorp frá ISIS á síðustu dögum.


Tengdar fréttir

ISIS-liðar búnir að missa fjórðung

Barack Obama Bandaríkjaforseti og Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, munu eiga fund í Hvíta húsinu í Washington í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×