Erlent

ISIS-liðar að missa tökin í Líbíu

Atli Ísleifsson skrifar
Sirte er borg á Miðjarðarhafsströnd Líbíu og hefur verið helsta vígi ISIS í landinu.
Sirte er borg á Miðjarðarhafsströnd Líbíu og hefur verið helsta vígi ISIS í landinu. Vísir/AFP
Líbískir hópar sem njóta stuðnings Bandaríkjahers segjast nú ráða yfir byggingum sem hafa þjónað hlutverki höfuðstöðva hryðjuverkahópsins ISIS í líbísku borginni Sirte.

Í frétt BBC er haft eftir talsmanni sveitanna að Ouagadougou-ráðstefnuhöllin sé nú í þeirra höndum og liðsmenn ISIS hafi hörfað þaðan.

Sirte er borg á Miðjarðarhafsströnd Líbíu og hefur verið helsta vígi ISIS í landinu.

ISIS-liðar hafa ráðið lögum og lofum í borginni frá febrúar 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×