Sport

ÍSÍ, Styrmir og Samtökin '78 berjast saman gegn fordómum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/GayIceland.is
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Íþróttafélagið Styrmir og Samtökin ’78 hafa nú tekið höndum saman um að berjast á móti fordómum gagnvart samkynhneigðum í íslensku íþróttalífi.

Mikil umræða hefur verið um hlut samkynhneigðra í íslenskum íþróttum eftir að GayIceland skrifaði um þetta og Kári Garðarsson, þjálfari kvennaliðs Gróttu vakti einnig athygli á þessu málefni í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Akraborginni.

Sjá einnig:Kári segist hafa komið óvart út úr skápnum 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Íþróttafélagið Styrmir og Samtökin ’78 hittust á fundi fyrir helgi og þar var farið yfir stöðu mála og það sem þarf að gera til að útrýma fordómum sem þessum út úr íslensku íþróttalífi.

Það er fjallað um fundinn á gayiceland.is þar sem er meðal annars talað við Jón Þór Þorleifsson, formann Íþróttafélagsins Styrmis.

„Þetta var frábær fundur," sagði Jón Þór í viðtali við Ingibjörgu Rósu á gayiceland.is.

„Þetta var samt bara fyrsti fundurinn okkar og þessir hlutir breytast ekki á einni nóttu. Við ætlum engu að síður að stofna til samstarfs um að útrýma fordómum gagnvart samkynhneigðum í íþróttum," sagði Jón Þór en  Samtökin ’78 munu meðal annars leggja til fræðsluefnis til íslenskra íþróttafélaga.

„Samtökin ’78 eiga fullt af kennsluefni sem er hægt að útfæra fyrir íþróttafélögin. Við munum líklega hittast fljótlega aftur og ákveða næstu skref," sagði Jón Þór.

Sjá einnig:Fjöldi íþróttamanna í skápnum

„Ég var mjög ánægður með að sjá hvað ÍSÍ hefur þegar útbúið mikið efni gegn fordómum. Þeir hafa sett á laggirnar siðareglur í hverju félagi og fleira. Þetta eru samt risasamtök með þúsundir meðlima og það getur því verið erfitt að fylgja þessu eftir. Við erum samt öll fullkomlega sammála um að það er ekki í lagi að vera með fordóma, hvort sem það er gagnvart samkynhneigðu fólki eða öðrum," sagði Jón Þór.

Það er hægt að lesa allt viðtalið og umfjöllun gayiceland.is með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×