Matur

Ísbúa klemma með peru- og melónusalsa að hætti Eyþórs

Rikka skrifar
visir/skjaskot

Tilvalin eftirréttur með sumargrillinu að hætti Eyþórs Rúnarssonar úr þættinum sumar- og grillréttir Eyþórs á Stöð 2

Ísbúa klemma með peru- og melónusalsa

Ísbúaklemma

4 stk hveiti tortillur

200 gr gullostur

150 gr rjómaostur

2 msk  fínt saxaður graslaukur

1 msk fínt skorinn rauðlaukur

Setjið allt hráefnið nema tortillurnar saman í hrærivélarskál og blandið saman í 1-2 mín. Skiptið ostinum jafnt ofan á 2 af hveiti tortillunum og leggið svo hinar 2 yfir og pakkið hvorri um sig inn í álpappír. Setjið á heitt grillið og grillið í 2 mín á hvorri hlið.

Peru og melónusalsa

1 stk pera


¼  hunangsmelóna

½ stk fínt skorið rautt chili

1 msk lime chutney

50 gr ristaðar furuhnetur

Skrælið og skerið peruna í litla bita og setjið í skál. Skerið utan af hunangsmelónunni og blandið henni saman við peruna ásamt chiliinu, lime chutneyinu og furuhnetunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×