Innlent

Ísbjörn ógnar öryggi bæjarbúa á Grænlandi

Þórdís Valsdóttir skrifar
Jóhann Bragason býr í bænum Nanortalik á sunnanverðu grænlandi þar sem ísbjörn gengur laus. Eiginkona hans Linda Björk Lýðsdóttir hefur dvalið hjá honum og segir öruggast að halda sig inni.
Jóhann Bragason býr í bænum Nanortalik á sunnanverðu grænlandi þar sem ísbjörn gengur laus. Eiginkona hans Linda Björk Lýðsdóttir hefur dvalið hjá honum og segir öruggast að halda sig inni. Mynd/Jóhann Bragason
Hvítabjörn var felldur í bænum Nanortalik sem stendur á eyju við Suður-Grænland. Björninn var felldur eftir að hann drap íslenskan hest skammt frá sauðfjárbýli syðst á Grænlandi og hafði byrjað að rífa hann í sig.

Jóhann Bragason, íbúi í Nanortalik, segir að tveir ísbirnir hafi verið felldir á síðustu dögum og að sést hafi til þess þriðja á svæðinu í gær.

„Það sást til birnunnar, og hún er hættulegust. Íbúum hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra og hafa hægt um sig,“ segir Jóhann.

Jóhann Bragason býr í bænum Nanortalik á sunnanverðu Grænlandi þar sem ísbjörn heldur sig í bæjarlandinu. Eiginkona hans Linda Björk Lýðsdóttir dvelur hjá honum um þessar mundir. Hún segir öruggast að halda sig inni. Mynd/Jóhann Bragason
Talið er að björninn sem felldur var á miðvikudag hafi verið húnn birnunnar sem ráfar nú um svæðið.

„Nanortalik þýðir heimkynni ísbjarna,“ segir Jóhann og bætir því við að það sé alþekkt að hvítabirnir komi til bæjarins á vorin með hafís sem berst suður með austurströnd Grænlands og fer svo upp meðfram vesturströndinni. Þó segir hann að mjög óvenjulegt sé að birnirnir séu á ferð svona snemma árs.

„Þetta er mjög óþægilegt og flestir Grænlendingar eru með riffla eða önnur vopn í húsunum sínum til að verjast þessum dýrum, en það er ég ekki því ég er ekki vanur því frá Íslandi,“ segir Jóhann. „Þetta eru stórhættuleg dýr og ef maður lendir í einu slíku þá er maður að öllum líkindum dauður,“ segir Jóhann.



Linda Björk Lýðsdóttir. Mynd/Jóhann Bragason
Jóhann hefur búið í Nanortalik frá því í september síðastliðnum og eiginkona hans, Linda Björk Lýðsdóttir, er hjá honum um þessar mundir.

„Ég er ekki óttaslegin hér heima fyrir, þó ég sé ein, en ég hef ekki þorað út í dag,“ segir Linda.

Jóhann segir bæjarbúa frekar óttaslegna.

„Ég stýri fiskvinnslu í bænum og um 50 manns starfa hjá mér en einungis sjö mættu til vinnu í morgun,“ segir Jóhann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×