Erlent

Isabel var rænt af sænska lækninum: "Hann vildi að við svæfum saman“

atli ísleifsson skrifar
Isabel Eriksson verður í viðtali í þætti Fredrik Skavlan í kvöld. Læknirinn er sagður hafa dulbúið sig með þessum grímum á meðan hann ók með konuna meðvitundarlausa frá Stokkhólmi að býlinu á Skáni.
Isabel Eriksson verður í viðtali í þætti Fredrik Skavlan í kvöld. Læknirinn er sagður hafa dulbúið sig með þessum grímum á meðan hann ók með konuna meðvitundarlausa frá Stokkhólmi að býlinu á Skáni. SVT/Sænska lögreglan
Konan, sem var rænt af sænskum lækni í september 2015 og haldið fanginni í um viku, verður í viðtali í þætti Fredirk Skavlan í sænska og norska ríkissjónvarpinu í kvöld.

Í frétt SVT er birt brot úr viðtalinu þar sem Isabel Eriksson segir frá því hvernig henni var byrlað ólyfjan í Stokkhólmi og hún flutt á býli mannsins suður á Skáni þar sem hún vaknaði í byrgi með sprautu í handleggnum.

„Ég sé málmklætt loft og mann sem situr á stól við hliðina á mér og horfir á mig og ég sé nál í handleggnum sem ég ríf strax af mér,“ segir Eriksson.

Þetta er í fyrsta sinn sem hún ræðir reynslu sína opinberlega, en málið vakti gríðarlega athygli í Svíþjóð og raunar víðar.

Maðurinn sem rændi henni, Martin Trenneborg, er 39 ára gamall og starfaði á þeim tíma sem læknir. Hann var í héraðsdómi dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir mannrán. Dómnum var áfrýjað og dómurinn mildaður í átta ára fangelsi. Þá tóku heilbrigðisyfirvöld ákvörðun um að svipta hann réttindum sínum.

Byrgið.sænska lögreglan
Vildi líkamlega snertingu

Við réttarhöld sagðist maðurinn hafa á þeim tíma sem hann rændi Eriksson hafa fundið fyrir því sem hann lýsti sem „geðrænni truflun“. Þá sagðist hann hafa viljað eignast kærustu og því hafi hann rænt konunni.

Í frétt SVT segir að Eriksson að maðurinn þarfnist mikillar nándar. „Hann vildi að við svæfum saman… og það var auðvitað skelfilegt að sofa við hliðina á manni sem hefur rænt manni. Hann vildi stöðuga líkamlega snertingu.“

Í fyrri fréttum Vísis af málinu kom fram að maðurinn hefði komið svefntöflum fyrir í jarðarberjum sem konan neytti og var henni ekið á bæ læknisins í sveitinni á Skáni skömmu síðar. Þar hafði maðurinn komið upp hljóðeinangruðu byrgi þar sem ætlunin var að halda henni fanginni í mörg ár.

Teikning af sænska lækninum Martin Trenneborg og verjanda hans Mari Schaub í réttarsal í Stokkhólmi.Vísir/EPA
Fór aftur til Stokkhólms

Upp komst um málið þegar læknirinn komst að því að lögreglan væri að leita að konunni. Það gerðist þegar hann ákvað að aka aftur til Stokkhólms með konuna svo hún gæti náð í föt á heimili sínu. Þegar þangað var komið kom í ljós að lögreglan hafði brotið upp hurðina á heimili hennar og skipt um lás.

Læknirinn er sagður hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann komst að því. Hann ákvað því að skipa konunni að fara á lögreglustöð í Stokkhólmi þar sem hún átti að segja lögreglunni að það amaði ekkert að henni og því mætti hætta leitinni að henni. Maðurinn fór með henni á lögreglustöðina og hafði skammbyssu meðferðis. Hafði hann hótað að myrða konuna ef hún gerði ekki eins og hann sagði.

Þegar á lögreglustöðina var komið ákváðu lögreglumennirnir að taka konuna afsíðis og yfirheyra hana, þar sem þeir áttu bágt með að trúa hennar frásögn. Kom þá í ljós að hún var fangi læknisins og var hann handtekinn í kjölfarið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×