Erlent

IS birtir myndband af aftöku Sotloffs

Atli Ísleifsson skrifar
Myndband af aftöku James Foley var birt á netinu um miðjan síðasta mánuð.
Myndband af aftöku James Foley var birt á netinu um miðjan síðasta mánuð.
IS-samtökin hafa birt myndband af aftöku bandaríska blaðamannsins Stevens Sotloff á netinu. AP greinir frá þessu.

„Ég er viss um að þið vitið nákvæmlega hver ég er og af hverju ég stend hér,“ segir Sotloff í myndbandinu. Síðar í myndbandinu sker böðull höfuðið af Sotloff. Annar maður, Breti að nafni David Cawthorne Haines, kemur svo fyrir og er tilkynnt að hann sé næstur í röðinni ef engin breyting verði á stefnu Bandaríkjastjórnar.

Sotloff beinir orðum sínum til Baracks Obama Bandaríkjaforseta á meðan böðullinn heldur á hníf nærri hálsi Sotloffs. Spyr Sotloff Obama hví hann þurfi að gjalda fyrir utanríkisstefnu Bandaríkjanna þegar yfirlýst markmið hennar sé að vernda líf bandarískra borgara.

Síðar í myndbandinu segir böðullinn að eins lengi Bandaríkjamenn haldi loftárásum sínum áfram á „okkar fólk“ verði hnífum áfram beint að hálsi „ykkar fólks.“ Myndbandið er um tvær og hálf mínúta að lengd.

Sotloff var rænt í sýrlensku borginni Aleppo á síðasta ári. Hann bjó síðustu árin í Jemen, talaði góða arabísku og vann meðal annars fyrir Time, Foreign Policy og Christian Science Monitor. Hann flutti fréttir frá Egyptalandi, Líbíu og Sýrlandi.

IS-liðar birtu myndband af aftöku bandaríska blaðamannsins James Foley um miðjan síðasta mánuði en í lok myndbandsins kom Sotloff fyrir og hótaði IS að Sotloff yrði einnig tekinn af lífi ef bandarísk stjórnvöld gerðu ekki breytingar á stefnu sinni í málefnum Íraks og Sýrlands.

Foley var hins vegar rænt nærri sýrlenska bænum Taftanaz í nóvember 2012 þar sem hann fjallaði um tilraun uppreisnarafla til að steypa Bashar al-Assad Sýrlandsforseta af stóli.

Móðir Sotloffs biðlaði til leiðtoga IS, Abu Bakr al-Baghdadi, í síðustu viku og bað um syni sínum yrði sleppt.

Talsmaður Hvíta hússins sagði Bandaríkjastjórn ekki geta sagt til um á þessari stundu hvort myndbandið væri ekta, en að hugur hennar væri hjá fjölskyldu Sotloffs.


Tengdar fréttir

Gerðu misheppnaða tilraun til að bjarga Foley

Bandarísk stjórnvöld hafa greint frá því að nýverið hafi verið skipulögð leynileg sendiför sérsveitamanna til Sýrlands til þess að freista þess að fresla bandaríska gísla sem eru í höndum íslamskra öfgamanna.

Obama fordæmir morðið á Foley

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir morðið á bandaríska blaðamanninum James Foley, sem var afhöfðaður af meðlimum samtakanna Íslamskt ríki, vera hræðilegan verknað, sem hafi slegið alla heimsbyggðina.

Leit hafin að „Svarta bítlinum“

Maður sem var áður haldið í gíslingu í Sýrlandi segir böðulinn vera vel menntaðan Breta sem hafi gengið undir nafninu „John“.

Morðingjar Foleys kröfðust 132 milljóna dollara lausnargjalds

Vinnuveitandi bandaríska blaðamannsins James Foleys hefur upplýst að samtökin hafi krafist 132 milljóna dollara lausnargjalds fyrir Foley á síðasta ári. Fyrirtækið tók lausnargjaldskröfuna ekki alvarlega sökum þess hversu há hún var.

Skilaboðin eru skýr

Samtökin Íslamskt ríki hóta að taka annan bandarískan blaðamann af lífi láti Bandaríkjamenn ekki af loftárásum sínum á Írak. Forsætisráðherra Breta segir nauðsynlegt að leita allra leiða til að stöðva samlanda sína í því að ganga til liðs við hin grimmilegu samtök.

Bandaríkjaher reyndi að bjarga Foley

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, heimilaði í síðustu viku sérstakar aðgerðir til að frelsa bandaríska gísla í haldi samtakanna Íslamskt ríki í Írak, eftir að upplýsingar lágu fyrir um þeir væru í hættu. Aðgerðirnar mistókust þar sem ekki tókst að staðsetja gíslana




Fleiri fréttir

Sjá meira


×