Viðskipti erlent

Iron Man rétti fram hjálparhönd

Samúel Karl Ólason skrifar
Hinum sjö ára Alex brá heldur í brún, þegar leikarinn Robert Downey Jr., í hlutverki Tony Stark, eða Iron man, gaf honum hátækni gervihendi. Alex fæddist með vanskapaða hendi og er mikill aðdáandi ofurhetja.

Í hugljúfu myndbandi sem birtist á netinu í gær má sjá skemmtileg viðbrögð Alex, sem getur ekki hætt að brosa. Robert Downey lætur hann fá hendi, í líki búnings Iron man ofurhetjunnar og setur upp svipaða hendi.

Gervihöndin var þróuð af Alberto Manero sem byggir og gefur slíka limi til barna um heim allan. Höndin er þrívíddarprentuð og kostaði einungis um 350 dali, eða um 50 þúsund krónur. Það er mun minna en hefðbundin gervilimur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×