Lífið

Írar kynþokkafyllstir

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Colin Farrell er Íri og hefur verið talinn kynþokkafullur.
Colin Farrell er Íri og hefur verið talinn kynþokkafullur.
Írskir menn eru þeir kynþokkafyllstu samkvæmt nýlegri könnun þar sem þúsundir bandarískra kvenna voru beðnar um álit.

Könnunin fór fram á vefsíðunni MissTravel.com og af 66 þúsund einhleypum konum sögðust 8 þúsund telja þá írsku kynþokkafyllsta. Samkvæmt vefsíðu Independent hafði írski hreimurinn áhrif á val kvennanna. Í greininni er bent á að þrátt fyrir að ekki hafi verið spurt sérstaklega um hvort að áberandi fólk í þjóðfélaginu hafi haft áhrif á valið megi leiða líkum að því að hinn írski leikari Jamie Dornan í 50 Shades of Grey gæti hafa haft áhrif á niðurstöðurnar.

Karlmenn voru einnig beðnir um sitt álit á síðunni hvað kvenmenn varðaði. Þá kom í ljós að armenskar konur eru taldar þær kynþokkafyllstu. Líklegt er að þar spili raunveruleikastjörnurnar Kardashian systurnar inn í en þær eiga armenska forfeður.

Kynþokkafyllstu þjóðernin samkvæmt konum:

1 Írar  – 7,862

2 Ástralir – 6,486

3 Pakistanar – 4,761

4 Ameríkanar – 2,909

5 Englendingar – 2,133

6 Skotar – 1,554

7 Ítalir – 905

8 Nígeríumenn – 721

9 Danir – 670

10 Spánverjar – 598



Kynþokkafyllstu þjóðernin samkvæmt karlmönnum:

1 Armenar  – 5,971

2 Barbados búar  – 4,036

3 Ameríkanar  – 3,402

4 Kólumbíubúar – 2,741

5 Englendingar  – 2,006

6 Ástralir  – 1,040

7 Brasilíumenn – 992

8 Filippseyingar – 651

9 Búlgarir – 429

10 Líbanonmenn– 323






Fleiri fréttir

Sjá meira


×