Erlent

Íranar horfa fram á betri tíð

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Hassan Rúhani, forseti Írans, brosti breitt á þingi í gær þegar ljóst var að efnahagslegum þvingunum hefði verið aflétt.
Hassan Rúhani, forseti Írans, brosti breitt á þingi í gær þegar ljóst var að efnahagslegum þvingunum hefði verið aflétt. Fréttablaðið/EPA
Íranar hafa fagnað því að alþjóðlegum refsiaðgerðum hefur verið aflétt af landinu. Þar með geta þeir á ný farið að stunda viðskipti við Vesturlönd, þar á meðal með olíu.

Alþjóðakjarnorkueftirlitið, IAEA, gaf á laugardaginn út yfirlýsingu um að Íranar hafi staðið við sinn hluta af samningnum, sem gerður var á síðasta ári. Í beinu framhaldi af þeirri yfirlýsingu afléttu Vesturlönd efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Íran.

Í gær voru svo fimm bandarískir fangar látnir lausir í Íran, þar á meðal blaðamaðurinn Jason Rezaian, en á móti láta Bandaríkjamenn sjö íranska fanga lausa.

Samningurinn snerist um að Íranar drægju verulega úr möguleikum sínum til að búa til kjarnorkuvopn, meðal annars með því að losa sig við megnið af því auðgaða úrani, sem þeir höfðu komið sér upp, og eyðileggja jafnframt 12.000 skilvindur sem nota mátti til auðgunar úrans.

Í staðinn hafa nú bæði Bandaríkin og Evrópusambandið aflétt viðskiptaþvingunum, þannig að nú er fyrirtækjum á Vesturlöndum frjálst að fjárfesta í olíu, skipasmíðum, fjármálafyrirtækjum og fjölmörgum öðrum viðskiptatækifærum í Íran.

Þar með má búast við því að efnahagslífið í Íran taki nokkurn kipp á næstunni og hagur almennings batni jafnframt, þegar nýir markaðir opnast og framleiðsla eykst.

„Þetta er mjög góður dagur fyrir írönsku þjóðina, og mjög góður dagur fyrir okkar heimshluta,“ sagði Mohammad Javad Zarif, utanríkisráðherra Írans. „Þetta er dagurinn sem við sýnum heiminum fram á að hótanir, refsiaðgerðir, ógnir og þrýstingur virka ekki. Það sem virkar er að sýna virðingu.“

Dagblöðin í Íran fögnuðu almennt niðurstöðunni og Hassan Rúhani forseti, sem talinn er eiga stóran þátt í að samningar tókust, segir að nú séu allir ánægðir, „nema síonistar, stríðsæsingamenn og þeir sem sá fræjum óánægju meðal íslamskra þjóða og öfgamenn í Bandaríkjunum. Allir aðrir eru ánægðir.“

Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði samninginn líka til marks um að árangursríkara sé að nálgast málin af skynsemi, þolinmæði og ögun, frekar en að fara í stríð.

Strax í gær tilkynntu Bandaríkin reyndar að nýjar refsiaðgerðir verði lagðar á Íran, vegna flugskeytatilrauna sem Íranar gerðu fyrir fáum vikum. Þessar nýju refsiaðgerðir eru hins vegar afar takmarkaðar: Þær fela í sér að 11 stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum verður bannað að nota banka í Bandaríkjunum.

Þingkosningar verða haldnar í Íran í lok febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×